Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Vel heppnaðir starfsdagar

19.8.2010

Starfsdagar2010-075++

Að baki eru nú tveir afar vel heppnaðir Heilsuskolar_taknAAA_150starfsdagar sem Lýðheilsustöð gekkst fyrir um Heilsueflandi grunnskóla. Þátttakendur voru á þriðja hundrað frá meira en 30 skólum. Það var Víkurskóli í Grafarvogi sem hýsti starfsdaga Lýðheilsustöðvar af myndarskap og mikilli hjálpsemi.

mynd_20100817_090627+Starfsdagar2010-036Það fyrirkomulag var haft að sama dagskrá var í boði báða dagana þannig að þátttakendur gátu valið sér mismunandi dagskrá í hliðlægum vinnustofum. Með einstakri hjálpsemi starfsfólks Víkurskóla tókst að leysa öll úrlausnarefni snurðulaust en þar bar hæst það ánægjulega viðfagnsefni að þátttakendur voru mun fleiri en vænst var.

Forstjóri Lýðheilsustöðvar, Margrét Björnsdóttir, setti dagskrána, bauð gesti velkomna báða daga og kynnti aðkomu Lýðheilsustöðvar að verkefninu, en strax að því loknu hófst vinnustofa um geðrækt­― Vinir Zippýs – en hana sótti stór hópur kennara.

Aðrir sátu áfram og hlýddu á kynningu og umfjöllun um sögu, forsendur og rannsóknir sem liggja að baki verkefninu um heilsueflandi grunnskóla og reynslu grunnskóla Egilsstaða af starfi í þeim anda, í samstarfi við Lýðheilsustöð.

Eftir hádegi skiptist sá hópur svo upp í þrjár mismunandi vinnustofur, samhliða vinnustofunni um geðvernd, þ.e. um hreyfingu og öryggi, um næringu og tannvernd, og fjórða vinnustofan fékkst við forvarnir gegn áhættuhegðun svo sem gegn notkun tóbaks, áfengis og fíkniefna auk forvarna gegn ofbeldi í samböndum ungs fólks.


DagskraStarfsdaga150  Dagskrá starfsdaganna

Sameiginlegir fyrirlestrar:

Starfsdagar2010-044_BB Um heilsueflandi skóla (Sveinbjörn Kristjánsson)

Starfsdagar2010-053  Heilsuefling í Grunnskóla Egilsstaða (Sigurbjörg Kristjánsdóttir)

Starfsdagar2010-083  Rannsóknir á lífsstíl og líðan grunnskólanema (Stefán Hrafn Jónsson)

Myndir frá starfsdögunum 17. og 18. ágúst 2010

(Smella á smámynd til að stækka)

 mynd_20100817_090553+
 DSC_1398++
 mynd_20100817_090627+  mynd_20100817_091553+
 mynd_20100817_091828+  mynd_20100817_092711+  mynd_20100817_092750+  mynd_20100817_093032+
 mynd_20100817_093259+  mynd_20100817_093648+  mynd_20100817_093739+  mynd_20100817_093748+
 mynd_20100817_093853+  mynd_20100817_094145+  mynd_20100817_124058BB  mynd_20100817_124401
 mynd_20100817_124731BB  mynd_20100817_090617+  Starfsdagar2010-038  Starfsdagar2010-0385
 Starfsdagar2010-044_BB
 Starfsdagar2010-048  Starfsdagar2010-0483  Starfsdagar2010-0486
 Starfsdagar2010-053  Starfsdagar2010-054  Starfsdagar2010-067  Starfsdagar2010-073
 Starfsdagar2010-075  Starfsdagar2010-083  Starfsdagar2010-089  Starfsdagar2010-135

Tengt efni:

Heilsueflandi skólar

Skólaþing Lýðheilsustöðvar í apríl 2010

Heilsuskolar_taknAAA_150


Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica