Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Starfsdagar fyrir heilsueflandi grunnskóla - Dagskrá

11.8.2010

Skólamynd

Lýðheilsustöð gengst fyrir starfsdögum fyrir kennara og starfsfólk grunnskóla um heilsueflandi grunnskóla, dagana 17. og 18 ágúst n.k. í Víkurskóla í Grafarvogi.

Starfsdagar Lýðheilsustöðvar fyrir starfsfólk grunnskóla verða í Víkurskóla í Grafarvogi dagana 17. og 18 ágúst.

Fram til hádegis báða dagana verður sameiginleg almenn yfirferð en eftir hádegi er þátttakendum skipt upp á samhliða vinnustofur. „Vinir Zippýs“ hefja þó sitt vinnustofustarf strax um morguninn. Sama dagsskrá er í boði báða daga til að auðvelda þátttakendum að sækja fleiri en eina samhliða vinnustofu eftir þörfum sínum og áhuga.


Starfsdagar2010-054++




 Myndir og fréttir frá starfsdögunum 17. og 18. ágúst 2010
Skolathing_M_20100909-29-00





Efni og fyrirlestra frá skólþingi Lýðheilsustöðvar í apríl 2010





Dagskrá starfsdagana 17. og 18. ágúst:

  (Eins báða dagana)
8:45-9:00 Afhending gagna
9:00-9:15 Opnun
9:15-11:30

Um heilsueflandi skóla

Kynning á heilsueflingu í skólum. Farið yfir þróun og sögu forvarna og heilsueflingar. Hugmyndarfræði heilsueflandi skóla verður kynnt og hagnýtar leiðir í því hvernig skólinn getur unnið að heilsueflingu nemenda og starfsfólks.

Heilsuefling í grunnskóla

Dæmi um starf: Grunnskóli Egilsstaða

Rannsóknir á lífsstíl og líðan grunnskólanema

Meðal annars verður yfir nýjar niðurstöður úr könnuninni Heilsa og lífskjör skólanema (HBSC) og hvaða gögn standa grunnskólum til boða.

11:30-12:30 Hádegishlé – Léttar veitingar í boði
12:30-16:00 Vinnustofur – ATH vinnustofa 3, Geðrækt hefst kl. 9 og er allan daginn.

Vinnustofa 1

Hreyfing/Öryggi

 

Farið yfir ýmis hagnýt atriði varðandi hvernig má auka daglega hreyfingu í tengslum við mismunandi þætti skólastarfs með öruggum og ánægjulegum hætti. Má sem dæmi nefna virkan ferðamáta, hreyfingu í almennum kennslustunum innandyra, útikennslu og hreyfingu í frímínútum. Ný útgáfa, Virkni í skólastarfi, handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla verður kynnt ásamt frekara efni sem snýr að hreyfingu og öryggismálum í grunnskólum. 

Vinnustofa 2

Næring/ Tannvernd

Fjallað um mikilvægi hollrar næringar fyrir börn og hvernig skólasamfélagið getur stuðlað að bættum neysluvenjum þeirra m.a. með kynningu á Handbók fyrir skólamötuneyti.

Farið verður yfir þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem skila árangri til framtíðar í baráttunni við tannsjúkdóma. Leitast verður við að tengja fræðslu um tannvernd við hinar ýmsu námsgreinar í daglegu skólastarfi.  Kynnt verður frekara efni um næringu og tannvernd.

Vinnustofa 3

Geðrækt/

Vinir Zippýs

 

Vinir Zippýs er alþjóðlegt lífsleikninámsefni sem er ætlað að efla geðheilbrigði ungra barna. Áður en námsefnið er tekið til kennslu þurfa kennarar að sækja eins dags námskeið og fá að því loknu afhent námsefnið í heild sinni að kostnaðarlausu. Sjá nánar um námsefnið Vinir Zippýs á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.

Vinnustofa 4

Lífstíll

Farið verður yfir hvað virkar vel og hvað síður í forvörnum gegn áhættuhegðun s.s. áfengisneysla og tóbaksnotkun og mikilvægt hlutverk foreldra. Kynning á m.a. Tóbakslausir grunnskólar og ýmsu fræðsluefni. Einng verður fjallað um ofbeldi í samböndum ungs fólks og bent á upplýsingar sem eru aðgengilegar á netinu. Þá er fjallað um mikilvægi þess að kenna um jákvæða og örugga netnotkun auk þess að benda á það kennsluefni sem er til staðar fyrir kennara á vegum SAFT.
Starfsdagar2010-054++




 Myndir og fréttir frá starfsdögunum 17. og 18. ágúst 2010
Skolathing_M_20100909-29-00





Efni og fyrirlestra frá skólþingi Lýðheilsustöðvar í apríl 2010



Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica