Götuhátíð Jafningjafræðslunnar
Jafningjafræðslan og stuðningsaðilar bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð á Austurvelli föstudaginn 16. júlí frá kl. 14:00. Þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.
Á götuhátíð Jafningjafræðslunnar munu koma fram tónlistarmenn og skemmtikraftar á öllum aldri og til gamans má geta þess að 61 árs aldursmunur er á yngsta og elsta flytjanda á hátíðinni.
Á meðal þeirra sem fram koma eru: Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna, grínarinn Þorsteinn Guðmundsson flytur gamanmál, hressir parkour strákar sýna listir sínar ásamt götulistamanninum Wally. Þá verður flóamarkaður Hins Hússins í fullum gangi og seldir happdrættismiðar Jafningjafræðslunnará 0,- kr miðinn. Gestir og gangandi geta því unnið sér inn margskonar vinninga frá fjölmörgum fyrirtækjum í happadrætti sér að kostnaðarlausu. Vinningar verða dregnir út á milli tónlistaratriða.
Einnig verður boðið uppá fríar pylsur, Fanta lemon, candy-floss og smokka frá ONE á meðan byrgðir endast.
Það varður því margt um að vera fyrir þá sem vilja kíkja við á Austurvelli á föstudaginn 16. júlí frá kl. 14:00.
Þessi skemmtun er að sjálfsögðu ókeypis og vímulaus!
