Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

SAMAN í sólinni í sumar

2.7.2010

Sumardagur_i_Nautholsvik

Foreldrar eru hvattir til að njóta sumarsins með börnunum sínum og unglingum og verja tímanum saman. Sumarið einkennist oft af útilegum, útihátíðum og sumarbústaðaferðum, en mikilvægt er að foreldrar hafi í huga að börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki erindi í slíkar ferðir eftirlitslaus. Söfnum góðum minningum í sumar - SAMAN í sólinni.

Deildu með öðrum

Þótt Íslendingar haldi sumardaginn fyrsta hátíðlegan í apríl er víðast hvar annars staðar á norðurhveli jarðar miðað við að sumar hefjist á sumarsólstöðum 21. júní. Veðrið leikur við landsmenn þessa dagana og allir landshlutar hafa notið sólar að einhverju leyti síðustu vikurnar.

Kjörorð SAMAN -hópsins í sumar eru Saman í sólinni. Foreldrar eru hvattir til að njóta sumarsins með börnum sínum og unglingum og verja tímanum saman. Mikilvægt er að foreldrar hugi að því að börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki erindi í sumarbústaðarferðir, útilegur og útihátíðir eftirlitslaus og því nauðsynlegt að foreldrar standi saman í þeim efnum. Setjum ekki þá ábyrgð á unga fólkið okkar að vera ein á ferð þar sem upp geta komið aðstæður sem þau ekki ráða við eða eru varnarlaus.

 

Söfnum góðum minningum í sumar - SAMAN í sólinni

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica