Könnun á notkun vefsíðu Lýðheilsustöðvar
Notendur vefsíðu Lýðheilsustöðvar gætu orðið varir við það á næstu vikum að gluggi birtist á síðunni þar sem þeir eru beðnir að svara nokkrum spurningum um vefsíðuna. Með þessari könnun er verið að búa í haginn til að gera vefsíðuna enn betri og bæta við efni sem notendum finnst vanta. Það væri Lýðheilsustöð mikils virði að sem flestir tækju þátt því þannig getum við sameiginlega mótað góðan og notadrjúgan vef til framtíðar.
Glugginn sem birtist lítur út eins og myndin sýnir og með því að svara játandi birtist stuttur spurningalisti. Könnunin er algjörlega nafnlaus en spurt er nokkurra spurninga um notandann til að við getum áttað okkur á hvaða hópar það eru sem einkum nýta sér efni vefsins. Þetta hjálpar okkur að gera betri vef til framtíðar en eins og áður hefur komið fram í fréttum Lýðheilsustöðvar stendur fyrir dyrum að stöðin og Landlæknisembættið sameinist í eina stofnun 1. janúar 2011. Vinna þarf nýjan vef fyrir þessi sameiginlegu stofnun og kappkostað verður að allur undirbúningur verði þar eins og best verður á kosið.
