Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Forsetafrúr í heimsókn

10.6.2010

1Heimsokn_10Jun2010-061B

Hluti af opinberri heimsókn forseta Eistlands til Íslands er sérstök dagskrá fyrir forsetafrúnna. Hún hafði óskað eftir að fá kynna sér lýðheilsustarf, ekki síst það sem snýr að því að draga úr ofþyngd sem og vímuvörnum. Rétt fyrir hádegi í dag komu því í heimsókn til Lýðheilsustöðvar forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff og Evelin Ilves, forsetafrú Eistlands, ásamt fríðu föruneyti.

Starfsfólk Lýðheilsustöðvar tók á móti gestunum en Stefán Hrafn Jónsson, sviðsstjóri rannsókna- og þróunarsviðs, og staðgengill forstjóra í orlofi hans, bauð gesti velkomna. Síðan kynnti Bryndís Kristjánsdóttir, sviðsstjóri samskipta- og fræðslusviðs, stuttlega starfsemi Lýðheilsustöðvar, auk þess sem hún afhenti forsetafrúnum ýmiss konar ítarefni og litla gjöf. 1Heimsokn_10Jun2010-031BAð því loknu kynnti hún það helsta sem stöðin starfar að á sviði hreyfingar, fyrir Gígju Gunnarsdóttur, verkefnisstjóra hreyfingar sem er í orlofi. Jórlaug Heimisdóttir tók því næst við og kynnti verkefnið Allt hefur áhrif – einkum við sjálf! sem snýr að því að bæta næringu og hreyfingu barna og fjölskyldna þeirra. Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar, kynnti starfsemi stöðvarinnar á sviði næringar og að lokum kynnti Rafn Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, stöðu mála á því sviði.

Forsetafrúrnar og fylgdarlið sýndu efninu mikinn áhuga og spurðu margs en ströng dagskrá krafðist þess að þau héldu áfram för sinni þótt þau hefðu viljað spyrja um fleira. Evelyn Ilves færði starfsmönnum stóra körfu með margs konar góðgæti frá Eistlandi, þar sem allt hráefni var lífrænt. Heimsóknin tókst því vel í alla staða og vonar Lýðheilsustöð að hún hafi veitt Eistlendingum lið í sinni lýðheilsuvinnu, en fram kom hjá gestunum að vandamálin væri svipuð í báðum löndunum en áfengisneysla, og vandamál henni tengd, væru þó enn meiri hjá þeim.

Kynning 10. júní 2010.

Myndirnar:

 1Heimsokn_10Jun2010-013_B  1Heimsokn_10Jun2010-023B 1Heimsokn_10Jun2010-038B
 1Heimsokn_10Jun2010-036B 1Heimsokn_10Jun2010-031B   1Heimsokn_10Jun2010-030_B
 1Heimsokn_10Jun2010-044B  1Heimsokn_10Jun2010-054B  1Heimsokn_10Jun2010-061B

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica