Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Eldgosið í Eyjafjallajökli – hvað ber að hafa í huga

16.4.2010

mynd_20100417_1000


Lýðheilsustöð beinir því til landsmanna að fylgjast vel með ábendingum opinberra aðila um hvað beri að gera í aðstæðum eins og þeim sem skapast hafa vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.




Helstu aðilar sem veita stöðugt nýjustu upplýsingar um stöðu mála eru:

Almannavarnir
     - Nýr bæklingur: Hætta á heilsutjóni vegna gosösku

Landlæknir 
     - Upplýsingar um „Bráð áhrif gosösku á heilsufar“ og „Eldgos" á íslensku   - and in English Breski_25_JPG

Ríkisútvarpið
     - Upplýsingar á sérvef Ríkisútvarpsins um gosið

Stofnanir Háskóla Íslands
     - Margvíslegt efni um gosið   - and in English Breski_25_JPG

Umhverfisstofnun
     - Leiðbeiningar vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli

Veðurstofan
     - Upplýsingar um vinda, spá um öskufall  og um gosið   - and in English Breski_25_JPG


Hjálparsími Rauða krossins 1717 gegnir hlutverki upplýsingasíma fyrir almenning þegar náttúruhamfarir verða.

Askan

Fólk með öndunarfærasjúkdóma og aðra langvinna sjúkdóma ætti sérstaklega að kynna sér hvað þurfi að taka til bragðs og hvort þeim stafi hætta af hamförunum. Forða þarf börnum frá því að anda að sér öskunni.
Fram hefur komið að askan geti verið fólki skaðleg, hún geti farið illa með öndunarfæri, augu og húð.
Þar sem hún fellur, fýkur eða þyrlast upp af jörðu eigi fólk því helst að halda sig innan dyra á meðan aska er í loftinu en annars að bera rykgrímur fyrir vitum eða blautan klút. Þá sé ráðlagt að hafa hlífðargleraugu sé það unnt.
Vindátt stýrir því hvar aska fellur.
Nýr bæklingur: HÆTTA Á HEILSUTJÓNI VEGNA GOSÖSKU


Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica