Skólaþing Lýðheilsustöðvar 9. apríl
Lýðheilsustöð, í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir öðru skólaþingi sínu þann 9. apríl n.k. Þingið er haldið í Rúgbrauðsgerðínni og er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu.
Margir áhugaverðir fyrirlestrar eru á skólaþinginu fyrir alla þá sem áhuga hafa á skóla- og heilbrigðismálum. Einungis þarf að skrá sig því fjöldi þátttakenda takmarkast við húsrýmið og nauðsynlegt er að vita fjöldann því boðið er upp á veitingar í hádegi og kaffihléum.
Allar nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu skólaþingsins.
