Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Sameining Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins undirbúin

10.3.2010

Undirbúningur fyrir sameiningu Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættisins er hafinn. Stefnt er að því ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2011.

Frétt þessa efnis birtist á vefsíðu heilbrigðisráðuneytisins í dag. Undirbúningshópur sem vinna mun að sameiningu Landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar fundaði í fyrsta sinn í heilbrigðisráðuneytinu í gær. Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, hefur með höndum verkstjórn í sameiningarferlinu og mun hún leiða þá vinnu sem framundan er í samráði við Geir Gunnlaugsson landlækni og starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins.

Sameiningin er í samræmi við tillögu starfsnefndar um breytta skipan stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins, sem skilaði skýrslu í janúar 2010.


Deildu með öðrum

Dreifðu um vefinn

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica