Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Nýr heilsuvefur
- efni frá fagfólki fyrir börn, unglinga og foreldra

30.11.2009

Börn úr Fellaskóla opna vefsíðuna. Smellið á mynd til að stækka

Börn úr Fellaskóla opnuðu formlega nýja heilsuvefinn http://www.6h.is/. Opnunarathöfnin fór fram á Grand hóteli föstudaginn 27. nóvember. Nafnið á vefnum vísar til fræðsluefnisins 6 H heilsunnar sem er fróðleikur frá fagfólki fyrir börn, unglinga og foreldra.

Vefsíðan formlega opnuð. Smellið á mynd til að stækka.Mjög mikilvægt er að upplýsingar um heilsu, og þætti sem hafa áhrif á hana, séu áreiðanlegar og markmiðið með vefsíðunni er að börn, unglingar og foreldrar hafi auðveldan aðgang að upplýsingum frá fagfólki um heilsu. Heilsuvefurinn www.6H.is er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lýðheilsustöðvar, Landspítalans og Landlæknisembættisins.

 

 

 

Forsíða heilsuvefsins 6H

 Forsíða heilsuvefsins 6H. smellið á myndina til að opna vefsíðuna.

6 H heilsunnar

6H_logoSex hugtök sem öll byrja á H mynda umgjörð utanum 6H heilsunnar, þau eru hugtökin:

hollusta, hvíld, hreyfing, hamingja, hugrekki, og hreinlæti.

Sjöunda hugtakið, sem er kynþroski, hefur síðan skírskotun til tölustafsins 6. Að lokum eru slysavarnir og neytendaheilsa efnisflokkar sem ganga þvert á efnisflokkana sjö. Við gerð fræðsluefnisins var eftirfarandi haft að leiðarljósi:

  • að börn og unglingar átti sig á heildarmynd heilbrigðs lífsstíls; 6H heilsunnar
  • að leiðbeiningar væru jákvæðar og styrkjandi
  • að fræðslan á vefnum byggði á þátttöku, þ.e. gagnvirkni
  • að hver viðmælendahópur fengi efni við hæfi, þ.e. sérstakt efni fyrir börn, unglinga og foreldra. 

Heilbrigðisfræðsla í skólum 

Fræðsluefnið 6H heilsunnar er samstarfsverkefni Lýðheilsustöðvar og Heilsugæslunnar og lögðu þar margir starfsmanna beggja stofnana hönd á plóg. Efnið nota skólahjúkrunarfræðingar nú við kennslu um málefni heilsunnar í grunnskólum landsins, auk þess sem foreldrar barnanna, sem fá fræðslu hverju sinni, fá sent fréttabréf heim um sama fræðsluefni.

Í ritnefnd verkefnisins voru:

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, deildarstjóri barnadeildar kvenna- og barnasvið, Landspítala og formaður ritnefndar

Helga Lárusdóttir, skólahjúkrunarfræðingur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Jórlaug Heimisdóttir, verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð

Margrét Héðinsdóttir, settur sviðstjóri skólasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica