Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Áhugahvetjandi samtalstækni - að breyta lifnaðarháttum

23.11.2009

Lýðheilsustöð býður fagfólki á vegum heilsugæslunnar á námskeið í áhugahvetjandi samtalstækni mánudaginn 4. desember n.k. Á námskeiðinu verður einnig kynnt ný vefsíða með kennsluefni um samtalstæknina.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurmenntun HÍ og er ætlað starfsfólki heilsugæslunnar, s.s. læknum, hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Lýðheilsustöð býður fagfólki á vegum heilsugæslunnar að taka þátt í námskeiðinu og það er því heilsugæslunni að kostnaðarlausu.

Áhugahvetjandi samtalstækni (Motivational Interviewing) er aðferð sem virkjar áhugahvöt einstaklingsins og gerir honum auðveldara að breyta á lifnaðarháttum sínum. Viðtalstækninni er hægt að beita við allar breytingar á lifnaðarháttum en á námskeiðinu verður aðstoð við að hætta að reykja notuð sem dæmi. Á námskeiðinu verður einnig kynnt ný vefsíða, frjáls.is, um áhugahvetjandi samtalstækni fyrir heilbrigðisstarfólk, 

Heilbrigðisstarfsfólk sem tileinkar sér þessa samtalstækni eflir færni sína í að aðstoða fólk til slíkra breytinga. Lýðheilsustöð hvetur heilsugæslustöðvar til að senda starfsfólk á námsskeiðið sem hefur sérstakan áhuga á að aðstoða fólk við að breyta lifnaðarháttum sínum.


Kennarar á námskeiðinu eru Héðinn Svarfdal Björnsson, menntaður félagssálfræðingur, og Sveinbjörn Kristjánsson, dr. í heilbrigðisvísindum, verkefnastjórar fræðslumála hjá Lýðheilsustöð.
Tími: Föstudagur 4.desember 2009 kl. 9:00-16:00
Hvar: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7
Nánari upplýsingar um námskeiðið veitir Sveinbjörn Kristjánsson: sveinbjorn@lydheilsustod.is

Skráningareyðublað fæst með því að smella hér á tengilinn . Upplýsingar eru einnig veittar hjá Endurmenntun Hí í síma 525 4444.

Við skráningu eru þátttakendur beðnir að tilgreina vinnustað í athugarsemdarreit.  
 

   

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica