Heilsa og líðan Íslendinga
Framhaldsrannsókn 2009
Lýðheilsustöð ásamt samstarfsaðilum stendur um þessar mundir að rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga, Framhaldsrannsókn 2009. Rannsóknin er viðamikil spurningalistakönnun á heilsu, líðan og velferð fullorðinna Íslendinga og er unnin í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Landlæknisembættið, Landspítalann og Vinnueftirlitið, auk sérfræðinga hjá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík.
Spurningalistakönnunin var fyrst lögð fyrir í október 2007 og var hugsuð sem grunnur að reglubundnum mælingum á heilsu, líðan og lífsgæðum fólks á Íslandi og á helstu áhrifaþáttum heilbrigðis, þ.e. lífsháttum, aðstæðum og lífsskilyrðum. Þá voru sendir út spurningalistar til 9807 manna tilviljunarúrtaks Íslendinga á aldrinum 18-79 ára og var svarhlutfall rúm 60%. Af þeim sem svöruðu könnuninni samþykktu flestir að taka þátt í framhaldsrannsókn. Markmiðið þá var að kanna breytingar á heilsu og líðan Íslendinga að nokkrum árum liðnum.
Í ljósi breyttra aðstæðna í íslensku samfélagi, í kjölfar bankahrunsins haustið 2008, var ákveðið að fara af stað með framhaldsrannsóknina nú á haustmánuðum 2009. Leitað er eftir þátttöku þeirra sem tóku þátt í könnuninni árið 2007 og samþykktu jafnframt með undirskrift að taka þátt í framhaldsrannsókn. Megin markmið framhaldsrannsóknarinnar er að kanna breytingar á lífsháttum, félagslegri stöðu, heilsu og líðan fólks ári fyrir og ári eftir upphaf efnahagsþrenginganna í október 2008.
Þessi rannsókn er einstök hér á landi. Engin önnur rannsókn mælir eins vítt svið viðhorfa, hegðunar, heilsu og líðan fólks fyrir og eftir efnahagsþrengingar. Rannsóknin er veigamikill liður í upplýsingaöflun á því hvernig Íslendingum tekst að glíma við breytt efnahagsumhverfi og veita þannig mikilvægar upplýsingar um hugsanleg heilsufarsleg áhrif efhahagslegra áfalla. Í rannsókninni verður til að mynda leitast við að draga fram hvort og hversu vel félagsauður minnkar skaðleg áhrif áfalla í íslensku samfélagi en erlendar rannsóknir hafa sýnt að traust milli fólks, félagsleg tengsl, félagsleg þátttaka og félagslegur stuðningur getur haft áhrif á heilsu fólks og líðan.
Almennar upplýsingar um rannsóknarröðina Heilsa og líðan má finn hér: http://www.lydheilsustod.is/rannsoknir/heilsa-og-lidan-2007/
Upplýsingar fyrir þátttakendur má finna hér: http://www.lydheilsustod.is/rannsoknir/heilsa-og-lidan-2007/til-thatttakenda/
Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á rannsoknir[hja]lydheilsustod.is

