Fjölmiðlar og lýðheilsa
Fjölmiðlar hafa mikil áhrif á opinbera umræðu og eru oft nefndir fjórða valdið, líklega ekki að ástæðulausu. Félagsfræðingafélag Íslands, í samvinnu við Lýðheilsustöð, standa fyrir málþingi um fjölmiðla og lýðheilsu eftir hádegi þriðjudaginn 20. október á Hótel Sögu. Yfirskrift málþingsins er: Getur umfjöllun fjölmiðla skaðað velferð fólks?
Túlkun fjölmiðla á viðfangsefninu hverju sinni hefur áhrif á upplifun fólks á því efni sem fjallað er um. Í ófromlegum könnunum sem gerðar hafa verið á hlutfalli milli jákvæðra og neikvæðra frétta kemur í ljós að jákvætt framsettar fréttir eru í miklum minnihluta. Í allri umfjöllun er hægt að líta á málefnin frá ólíku sjónarhorni og setja umfjöllun fram með mismunandi hætti.
Afhverju er það t.d. meira fréttnæmt að ákveðið hlutfall Íslendinga vilji flytja af landi brott en ekki fréttnæmt allur sá fjöldi sem vill vera um kyrrt eða velur að flytja til Íslands á sama tíma?
Á málþinginu Fjölmiðlar og lýðheilsa verður m.a. leitað svara við eftirfarandi spurningum:
-
Afhverju nær neikvæð umfjöllun oftar upp á yfirborðið en sú jákvæða?
-
Hvaða áhrif hefur neikvæð umfjöllun á líðan almennings?
-
Hvert er hlutverk fjölmiðla á umbrotatímum?
Þátttökugjald er kr. 1500. Innifalið kaffi og ávextir.
Vinsamlega skráðið þátttöku og skráið viðburðinn: Fjölmiðlar og lýðheilsa
