Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Rannsókn Lýðheilsustöðvar í sjónvarpsþætti um vísindi

29.9.2009

Rannsókn Lýðheilsustöðvar á hamingju Íslendinga verða gerða skil á lifandi og áhugaverðan hátt í fyrsta þætti nýrrar sjónvarpsþáttaraðar um nýsköpun og íslensk vísindi. Þátturinn verður sýndur í Sjónvarpinu fimmtudaginn 1. október nk.

Lýðheilsustöð lét gera könnun á áhrifum efnahagsþrenginganna á heilsu og líðan Íslendinga með spurningakönnun strax í október 2008, aftur í janúar-febrúar 2009 og svo í maí-júní sl. Niðurstöðurnar eru mjög forvitnilegar og sýna m.a. að Íslendingar telja sig almennt hamingjusama og teljast reyndar á meðal hamingjusömustu þjóða í heimi.
Meira um hamingjurannsóknina

Nýsköpun - íslensk vísindi

Kynningarmynd_tillaga_01Hvað það er sem gerir það að verkum að Íslendingar eru hamingjusöm þjóð, þrátt fyrir allt, er meðal umfjöllunarefnis í sjónvarpsþættinum á fimmtudagskvöldið. Einnig er í fyrsta þættinum sagt frá því hvernig nota megi sjó og jökulvatn til þess að framleiða raforku og hvernig fatlaður vísindamaður tekur þátt í verkefni til að ná betra valdi yfir fingrum sínum með því að nota rafstraum.
Meiri upplýsingar um Nýsköpun og íslensk vísindi



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica