Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Íslendingar ennþá hamingjusöm þjóð, þrátt fyrir kreppu - niðurstöður nýrrar rannsóknar

19.8.2009

Á ýmsan hátt hefur verið unnið að því að kanna áhrif breytts efnhagsástands á Íslandi á landsmenn, einkum ungt fólk. Einnig að koma með tillögur að aðgerðum til að sporna gegn óæskilegum áhrifum efnahagsástandsins. Á ráðstefnu sem haldin var 17. ágúst sl. kom fram að þrátt fyrir allt teljast Íslendingar ennþá hamingjusöm þjóð.

Skoða efni ráðstefnunnar.

Yfirskrift ráðstefnunnar var Velferð íslenskra barna – sóknarfæri á umbrotatímum en að henni stóðu Lýðheilsustöð, heilbrigðisráðuneytið, félags- og tryggingamálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Velferðarsjóður barna. Margt áhugavert kom fram, bæði um stöðu mála nú og hvað þurfi að gera til að draga úr neikvæðum áhrifum kreppunnar á velferð og vellíðan landsmanna. Allir eru sammála um að forgangsatriði sé að huga að barnafjölskyldum og börnunum og ungmennunum sjálfum, m.a. að draga eftir föngum úr þeim neikvæðu afleiðingum sem fátækt getur haft í för með sér. En fram kom að fátækt á heimilinu er áhættuþáttur fyrir vandamál unglinga og ef mikil fátækt er í nærumhverfi barna og ungmenna, heimili og skóla, þá getur það einnig verið áhættuþáttur fyrir krakka frá ,,venjulegum” heimilum.

Hamingjusöm þjóð - unga fólkið er þó ósátt við ýmislegt

Lýðheilsustöð lét gera könnun á áhrifum efnahagsþrenginganna á heilsu og líðan Íslendinga með spurningakönnun strax í október 2008, aftur í janúar-febrúar 2009 og svo í maí-júní sl. Niðurstöðurnar eru mjög forvitnilegar og sýna m.a. að ungt fólk er ósátt við mjög margt en það sem kannski kemur á óvart er að Íslendingar telja sig almennt hamingjusama.

   

Börn úr leikskólanum Laugaborg sungu  Reginfirra lék jazz í ´hádegishléi
 Börn úr leikskólanum Laugaborg. Smella á mynd til að stækka  Hljómsveitin Reginfirra. smella á mynd til að stækka


  

Myndir úr könnun Lýðheilsustöðvar  Smellið á myndirnar til að stækka þær
 Mynd - hamingja Íslendinga. Smella á mynd til að stækka  Mynd - bjarsýni ungs fólks. Smella á myndina til að stækka
 Mynd - reiði ungs fólks. Smella á mynd til að stækka  Mynd - traust ungs fólks. smella á mynd til að stækka

Mynd - fátækt á heimili, félagsleg útskúfun. Smella á mynd til að stækka

Mynd Jóns Gunnars Bernburg sem sýnir áhrif fátæktar í nærumhverfi. (Smellið á mynd til að stækka)

Ölvun unglinga á ,,góðum" heimilum. Smella á mynd til að stækka.

Mynd Jóns Gunnars Bernburg sem sýnir ölvun unglinga á ,,góðum" heimilum s.l. 30 daga. (Smellið á myndina til að stækka)



 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica