Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Norrænu lýðheilsuverðlaunin afhent

30.6.2009

Barbro Westerholm, prófessor, hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár fyrir störf sín sem tengjast heilsufari aldraðra á Norðurlöndunum og á Evrópuvettvangi. Barbro Westerholm lauk læknisfræðinámi 1959, varð prófessor 1988 og er hún nú heiðursdoktor við háskólann í Uppsala og heiðursfélagi í sænska læknafélaginu.

Verðlaunin, 50.000 sænskar krónur, voru afhent á fundi norrænu félags- og heilbrigðismálaráðherranna í Reykjavík. Það er Norræni lýðheilsuháskólinn í Gautaborg sem tilnefnir verðlaunahafa fyrir hönd Norrænu ráherranefndarinnar og er gengið út frá því að verðlaunahafar hafi lagt sitt af mörkum til lýðheilsu á Norðurlöndunum og hafi haft umtalsverð áhrif með störfum sínum á þessu sviði. Rökstuðningur fyrir að velja Barbro Westerholm er að hún hafi með störfum sínum haft afgerandi áhrif á sviði lýðheilsu á Norðurlöndum.

Er þar meðal annars bent á störf hennar á sviði jafnréttis- og heilbrigðismála en hin síðari ár hefur Barbro Westerholm lagt höfuðáherslu á heilbrigðismál aldraðra. Þetta hefur hún gert og sagt að allir ættu að huga að því að lifa lífinu, allt lífið.

Sjá frétt ásamt myndum frá verðlaunaafhendingunni á vefsíðu heilbrigðisráðuneytisins.

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica