JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - námskeið Roberts Biswas-Diener í ágúst
Styrkleikar – Hamingja – Bjartsýni - Velgengni
Á námskeiðinu verður fjallað um kenningar og rannsóknir á styrkleikum og jákvæðum eiginleikum fólks, s.s. hamingju, bjartsýni, þrautseigju og velgengni. Helstu hugtök og kenningar á þessu sviði verða kynntar auk þess sem kennt verður hvernig hagnýta megi þessa hugmyndafræði á vettvangi t.d. í kennslu, ráðgjöf og meðferð. Kennsla verður í formi fyrirlestra, hópavinnu og umræðna.
Robert Biswas-Diener er klínískur sálfræðingur auk þess sem hann stýrir menntun og þjálfun hjá Center for Applied Positive Psychology í Bretlandi. Robert er höfundur bókarinnar ,,Happiness: Unlocking the Mysteries of Psychological Wealth”, sem hlaut PROSE verðlaunin sem besta bók í sálfræði árið 2008. Robert hefur mikla reynslu af því að vinna með jákvæða eiginleika og styrkleika í ráðgjöf og meðferð auk þess sem hann hefur kynnt rannsóknir sínar og haldið námskeið víða um heim.
Þess má geta að Robert er einn af fyrirlesurunum á ráðstefnunni Science, Community and Well being in Times of Crisis, sem fram fer í Reykjavík dagana 17. og 18. ágúst.
Annar leiðbeinandi á námskeiðinu er Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og forstjóri Lýðheilsustöðvar. Hún hefur m.a. unnið að rannsóknum á jákvæðri geðheilsu og hamingju Íslendinga og er höfundur bókarinnar Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10.
Um námskeiðið
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar við kennslu, ráðgjöf og að heilbrigðismálum. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík dagana 11., 12. og 13. ágúst 2009 kl. 12:30-16:30.
Námskeiðsgjald er 28.000 kr. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru bækurnar ,,Happiness – Unlocking the Mysteries of Psychological Wealth", eftir Ed Diener og Robert Biswas-Diener og ,,Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10", eftir Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, önnur námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Skráning er hjá: WWW.OPNIHASKOLINN.IS
Nánari upplýsingar veitir Auður Hrefna Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í síma 599 63 68 eða í gegnum tölvupóst á audurhg@ru.is.
