Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Austurbæjarbíó - Hús unga fólksins

9.6.2009

Austurbæjarbíó. Smella á mynd til að stækka. Austurbæjarbíó - Hús Unga Fólksins opnar formlega þriðjudagskvöldið 9. júní. Húsið verður miðstöð ungs fólks sem vill virkja krafta sína í hvetjandi umhverfi. Markmið miðstöðvarinnar er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu og aðstoð við framkvæmd hugmynda sinna.

Opnunarhátíð fer fram með pomp og prakt þriðjudaginn 9. júní og mun skrúðganga fara af stað kl. 18 frá klukkunni á Lækjartorgi. Leiðin liggur upp í Austurbæjarbíó, við Snorrabraut, þar sem tekið verður á móti gestum með grillpartýi, kynningu á starfi hússins og ýmsum tónlistaratriðum.

Húsið verður opið kl. 10-18 alla virka daga í sumar. Dagskráin er auglýst jafnóðum á heimasíðunni www.frumkvæði.is og svo á facebook, hópurinn er Austurbæjarbíó!

Virkir þátttakenndur hússins móta fjölbreytta dagskrá sumarsins og sköpunarkraftar þeirra verða nýttir við andlitslyftingu á Austurbæjarbíó. Auk þess verður boðið upp á hressingu og gefst tækifæri til að sýna sig og sjá aðra. Haft verður að leiðarljósi að skapa vettvang þar sem öllum er frjálst að koma á sínum eigin forsendum og taka þátt í að skapa sér skemmtilegt sumar.Tveir sjóðir hafa verið stofnaðir og hægt er að sækja um styrki úr þeim til að koma verkefnum af stað.

Hægt er að sækja um styrki til að vinna ýmis verkefni, nánari upplýsingar gefur starfshópur Austurbæjarbíós en í forsvari er:

Agnar Jón Egilsson, agnar@leynileikhusid.is, 849 8877

Meira efni um starfið

Samstarf

Þeir aðilar sem standa að opnun Austurbæjarbíós eru Samfélagið Frumkvæði (frumkvaedi.is), Hitt Húsið, Rauði Krossinn í Reykjavík, Lýðheilsustöð og Samband Íslenskra Framhaldsskólanema.

Allir eru hvattir til að mæta og fagna opnun Austurbæjarbíós og koma sem oftast í sumar!



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica