Færri nota ljósabekki
Samstarfshópurinn var stofnaður í byrjun árs 2004 en í honum eru fulltrúar frá Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu, Félagi íslenskra húðlækna, Lýðheilsustöð og Krabbameinsfélaginu. Hópurinn hefur á hverju ári staðið fyrir átakinu Hættan er ljós sem beint er gegn ljósabekkjanotkun fermingarbarna. Fyrir hönd hópsins hefur Capacent-Gallup fylgst með ljósabekkjanotkun á Íslandi með könnunum á hverju vori.
Niðurstöður könnunar 2009
Í könnun vorsins 2009 náði til 1350 Íslendinga á aldrinum 16-75 ára, vikmörk voru 2,8%. Þar var spurt hvort viðkomandi hefði farið í ljósabekk að minnsta kosti einu sinni undanfarna tólf mánuði og sögðust um18% hafa gert það. Árið 2004 sögðust um 30% hafa notað ljósabekki.
Mynd 1 sýnir niðurstöður árlegra kannanna undanfarinna ára. Á henni koma fram vikmörk (95%)
Mynd 2 Helstu notendur ljósabekkja eru ungar konur en þó hefur nokkur hópur karla notað ljósabekki. Myndin að sýnir hlutfallslegan fjölda karla og kvenna sem sögðust nota ljósabekki.
Frá árinu 2004 hefur mikil fækkun orðið í hópi þeirra sem nota ljósabekki, bæði meðal karla og kvenna. Athyglisvert er hversu mikil fækkun virðist hafa orðið meðal karla á síðasta ári. Hugsanlega veldur breyttur efnahagur þessu. Til samanburðar má geta þess að sænskar kannanir árin 2005, 2006 og 2007 sýndu að um 15% Svía á aldrinum 18-74 ára notuðu ljósabekki og voru konur tvöfalt fleiri en karlarnir.
Dreifðu um vefinn


