Rangur texti í auglýsingu Lýðheilsustöðvar
Nýverið kom út á vegum Lýðheilsustöðvar fræðsluefni fyrir ungt fólk um áfengi og skaðsemi af völdum neyslu þess. Um er að ræða endurskoðaða útgáfu af bæklingnum „Hvað veistu um áfengi?“ sem út kom fyrir nokkrum árum. Úr bæklingnum voru unnin veggspjöld og auglýsingar en ein þeirra, „Ef þú drekkur ekki“, hefur vakið upp hörð viðbrögð ýmissa, einkum vegna orðalags. Við nánari skoðum kom í ljós að rangur texti hafði farið í auglýsinguna og er beðist velvirðingar á því að hann hafi orsakað særindi.
Lesendum er bent á að kynna sér fræðsluefnið, annað hvort með því að panta bæklinginn hjá Lýðheilsustöð eða skoða hann hérna á vefsíðunni. Umrædd auglýsing er hvatning til ungs fólks um að neyta ekki áfengis og eru taldir upp nokkrir kostir við það, þeirra á meðal er textinn: „Áttu síður hættu á að verða fyrir ofbeldi, s.s. barsmíðum og nauðgun.“ Þessi texti er úr eldri útgáfu bæklingsins en í þeirri nýju endar setningin á „ofbeldi“ – og þannig átti hún að birtast í auglýsingunni en án þess að nokkur tæki eftir slapp eldri útgáfa textans í auglýsinguna. Þetta eru mannleg mistök og auglýsingin mun ekki birtast aftur með röngum texta.
Fræðsluefni fyrir ungt fólk um heilbrigð samskipti og sambönd
Nýverið birtist á vefsíðu Lýðheilsustöðvar fyrir ungt fólk fræðsluefni um heilbrigð sambönd og samskipti, sem kallast Ungt fólk til ábyrgðar, sem er samstarfsverkefni stöðvarinnar og Áfallamiðstöðvar Landspítala. Með því að smella á tengilinn er hægt að kynna sér þetta efni.
Dreifðu um vefinn
