Börn og auglýsingabann - RÚV þakkað
Lýðheilsustöð fagnar framtaki RÚV að leyfa ekki lengur birtingar auglýsinga í tengslum við sýningar á barnaefni stöðvarinnar og vonar að aðrir sem birta barnaefni taki RÚV sér þar til fyrirmyndar. Rannsóknir sýna að auglýsingar hafa áhrif á matvælaval barna og foreldra sem og neyslu, einnig að í kringum barnatíma í sjónvarpi á Íslandi voru eingöngu auglýstar óhollar matvörur á borð við sykraða svaladrykki, sykrað morgunkorn, skyndibita, sælgæti og pylsur.RÚV hefur nú fylgt góðu fordæmi m.a. sjónvarpsstöðvarinnar DR1 í Danmörku, sem aldrei hefur leyft auglýsingabirtingar í tengslum við sýningar á barnaefni og TV2 stöðvarinnar í Danmörku, sem einnig hefur sett sér strangar reglur um slíkt. Í Svíþjóð og Noregi leyfist ekki heldur að birta auglýsingar með barnaefni og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur verið með tilmæli um að settar yrðu reglur um auglýsingar og markaðssetningu matvæla fyrir börn.
Lýðheilsustöð var með umsögn um tillögu til þingsályktunar um takmörkun auglýsinga á óhollri matvöru (dags. 7.1. 2008) þar sem tillögunni er fagnað, ekki síst vegna þess að slíkt væri liður í að sporna við offitu landsmanna, ekki síst barna og ungmenna. Ofþyngd og offita meðal barna er sérstakt áhyggjuefni því um 21% grunnskólabarna eru yfir kjörþyngd og þar af eru um 5% of feit. Íslenska könnunin „Börn og auglýsingar“, unnin af Sesselíu Birgisdóttur, sýndi að 55% þeirra auglýsinga, sem birtar voru í kringum barnatíma í íslensku sjónvarpi, voru á matvöru, sælgæti og svaladrykkjum. Eingöngu voru auglýstar matvörur á borð við sykraða svaladrykki, sykrað morgunkorn, skyndibita, sælgæti og pylsur.
Í viðamikilli úttekt bresku Matvælastofnunarinnar (Food Standard Agency), á áhrifum matarauglýsinga í sjónvarpi á börn, kemur fram að þær fæðutegundir sem mest er haldið að börnunum eru þær sem stuðla að óhollu mataræði. Einnig að auglýsingarnar hafa áhrif á val barna á matvælum, bæði vörumerki, t.d. hvaða súkkulaðistykki á að velja, og flokk matvæla, s.s. sælgæti eða ávexti.
Lýðheilsustöð hvetur aðra sem birta barnaefni, s.s. kvikmyndahúsin, að taka sér RÚV til fyrirmyndar og leggja þar með sitt af mörkum til að sporna gegn ofþyngd og offitu barna á Íslandi.
Tengt efni:
Hvað er hóflegt magn af sykri?
Ráð fyrir foreldra vegna ofþyngdar barna
