Ofbeldi og slys á börnum - Morgunverðarfundur 25. mars
Lýðheilsustöð og slysavarnaráð standa fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi og slys á börnum, miðvikudaginn 25. mars kl. 8 -10 á Grand Hóteli, Sigtúni. Skráning fer fram á www.lydheilsustod.is/skraning fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 24. mars. Vinsamlegast merkið „Slysavarnir“.
Þátttökugjald er 2.000 kr. Innifalið í þátttökugjaldi er morgunverðarhlaðborð.
Fjórir áhugaverðir fyrirlestrar um efnið verða fluttir og tækifæri gefst til fyrirspurnar og umræðna.
Fjallað verður slysatíðni íslenskra barna og breytingar yfir tíma. Einnig verður tekið fyrir það forvarnarstarf sem hefur verið unnið hér á landi og hvaða nálganir hafa verið að gefa góða raun. Fulltrúi Barnaverndarstofu mun fjalla um ofbeldi á börnum á grundvelli barnaverndarlaga. Að lokum verður fjallað um áverkavarnir og þverfagleg samskipti í ljósi lýðheilsu.
Fundarstjóri er Eva María Jónsdóttir, dagskrágerðarmaður hjá RÚV
Dagskrá
8:00 Skráning og greiðsla þátttökugjalds
8:15 Setning morgunverðarfundar Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar
8:25 Slys á börnum Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir á slysa- og bráðasviði, Landspítala Háskólasjúkrahúss
8:40 Slysavarnir fyrr og nú Sigrún Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri slysavarnasviðs Slysavarnafélaginu Landsbjörg
8:55 Ofbeldi gegn börnum og íhlutun á grundvelli barnaverndarlaga Steinunn Bergmann, Félagsráðgjafi Barnaverndarstofu
9:20 Áverkavarnir í ljósi lýðheilsu Jenný Ingudóttir, verkefnisstjóri Lýðheilsustöð
9:40 Umræður
10:00 Fundarslit
Dagskráin á .pdf (opnast í nýjum glugga)
