Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - Rafrænt einelti
Í tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum þriðjudaginn 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15.
Á málþinginu, sem heilbrigðisráðherra setur, verður m.a. fjallað um:
- tegundir og birtingaform rafræns eineltis
- nýja rannsókn á rafrænu einelti
- tæknilegt umhverfi rafræns eineltis
- eftirlit foreldra
- afskipti og meðferð lögreglunnar á rafrænu einelti
- sál- og félagsfræðilegar hliðar eineltis
Fundarstjóri verður Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins á Íslandi. Þátttökugjald á málþing er ekkert en gestir eru vinsamlega beðnir um að tilkynna þátttöku á saft@saft.is. Boðið verður upp á veitingar.
Sérstök athygli er vakin á því að málþingið verður einnig sent út á vefnum, vefslóð fyrir netútsendingu er http://sjonvarp.khi.is/. Nánari upplýsingar á heimasíðu SAFT; www.saft.is .
SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum, hefur á síðustu árum staðið fyrir viðburðum á alþjóðlega netöryggisdaginn. Í ár standa SAFT, Heimili og skóli, Síminn, Microsoft Íslandi, menntamálaráðuneytið og Lýðheilsustöð, sameiginlega að málþingi um rafrænt einelti þennan dag.
Nánari upplýsingar um dagskrána (.pdf-skjal, opnast í nýjum glugga).
