Lýðheilsustöð og Heilbrigðisráðherra færa jólahjálpinni Velgengni og vellíðan
Fimm milljónir til sameiginlegrar jólahjálpar geta safnast núna fyrir jólin á sama tíma og við hlúum að geðheilsunni.
Forsvarsmenn Lýðheilsustöðvar og heilbrigðisráðherra færðu í dag fulltrúum Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands bókina Velgengni og vellíðan-um geðorðin 10.
Bókin verður seld án þóknunar þannig að öll innkoma rennur óskipt til sameiginlegu jólahjálparinnar. Fimm milljónir renna til jólahjálparinnar ef allar bækurnar seljast. Bókin var afhent í Rauðakrossbúðinni, Laugavegi 116.
Stuðningur við þá sem minnst mega sín
Í nýlegri heilsustefnu sem Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra kynnti á dögunum, er aðgerð sem miðar að því að styðja við félagasamtök sem aðstoða þá sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Fyrsti liðurinn í þessari aðgerð miðar að aðstoð núna fyrir jólin. Stutt verður við sameiginlega jólahjálp Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Hjálparstofnunar kirkjunnar og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands.
Lýðheilsustöð gefur vinnu og prentun á 5000 eintökum af bókinni ,,Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10”. Bókin verður seld án þóknunar þannig að öll innkoma rennur óskipt til sameiginlegu jólahjálparinnar, en gera má ráð fyrir að sá hópur, sem þarf á aðstoð að halda verði stærri í ár en áður. Ef allar bækurnar seljast má gera ráð fyrir að um 5 milljónir safnist í jólahjálpina.
Allt ferlið í kringum bókina endurspeglar hugmyndafræðina sem hún byggir á. Hugmyndin er sú að þeir sem hafa áhuga á að vita meira um velgengni og vellíðan geti þar fundið góð ráð fyrir sjálfa sig en einnig er hún tilvalin til gjafa. Fyrsta blaðsíðan er eins konar gjafakort þar sem hægt er að skrifa nafn þess sem fær bókina að gjöf og á eftir fylgir: ,,með ósk um velgengni og vellíðan” . Þeir sem kaupa bókina eru svo um leið að styðja við og styrkja félagasamtök sem vinna að því að auka vellíðan annarra. Með þessu hlúum við að samborgurum okkar í samræmi við 2. geðorðið og hvetjum aðra í kringum okkur, sem er svo aftur í samræmi við 7. geðorðið.
Bókagjöfin formlega afhent forsvarsmönnum Reykjavíkurdeildar RKÍ, Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Hjálparstofnunar Kirkjunnar.
Bókin Velgengi og vellíðan byggir á niðurstöðum fjölda rannsókna sem sýna m.a að.
- mjög veik tengsl eru milli tekna og hamingju á Íslandi. Tekjur útskýra aðeins 1-4% af íslenskri hamingju
- 96% af hamingju Íslendinga tengist því öðrum þáttum sem mikilvægt er að hlúa að, ekki síst á erfiðum tímum
- það er ekki fjöldi erfiðleika, heldur hvernig þú tekst á við erfiðleika sem skiptir mestu máli þegar kemur að velgengni og vellíðan
- sælla er að gefa en þiggja. Það að gefa af sér til annarra og styðja við aðra hefur jákvæð áhrif á heilsu, lífsgæði og fjölda æviára þess sem gefur.
Þetta er bók um hamingju sem fjallar ekki um það hvernig þú getur eignast meiri peninga, því sambandið milli peninga og hamingju er mjög veikt. Ef markmiðið er að verða hamingjusamur er mikilvægt að vita hvaða þættir eru líklegastir til að leiða til hamingju og vinna að þeim.
Sælla er að gefa en þiggja
Afar mikilvægt er að geta sett sig í spor annarra, reyna að skilja aðstæður þeirra og styðja við þá sem þurfa á stuðningi að halda. Það getur valdið streitu og haft slæm áhrif á heilsuna að eiga erfitt með að veita öðrum stuðning. Sömuleiðis sýna rannsóknir að það sé mikilvægara fyrir langlífi að geta veitt félagslegan stuðning heldur en að þiggja stuðning, þar með sannast að sælla er að gefa en þiggja.
Geðorðin 10
- Hugsaðu jákvætt það er léttara
- Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
- Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
- Lærðu af mistökum þínum
- Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
- Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
- Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
- Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
- Finndu og ræktaðu hæfileika þína
- Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast
Sameiginleg jólahjálp
Samstarf Mæðrastyrksnefndarinnar, Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands og Hjálparstarfs kirkjunnar hófst á haustdögum 2004 með sameiginlegri jólaúthlutun. Þá er úthlutað mat, leikföngum, bókum, fatnaði og ýmsum smávörum til jólagjafa. Aðra mánuði ársins eru stofnanirnar hver með sína sjálfstæðu starfsemi. Efnt var til þessa samstarfs til að gera bæði þeim fyrirtækjum sem styrkja jólaaðstoðina og þeim sem þiggja aðstoð auðveldara fyrir. Með þessu móti þarf aðeins að fara á einn stað og um leið er hægt að veita bæði faglegri og veglegri aðstoð. Sækja þarf um aðstoðina fyrirfram til Mæðrastyrksnefndar eða Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Nokkrar myndir frá afhendingu bókanna.
Hægt er að sjá stærri útgáfu að myndunum með því að smella á þær.







