Heilsustefna ráðherra kynnt
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnti heilsustefnu sína á fundi 18. nóvember. Heilbrigðisráðherra sagði að hún væri liður í því að geta veitt heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Snar þáttur í því væri að leggja stóraukna áherslu á forvarnir á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum einstaklinganna.
Kynningarfundurinn var haldinn á Hótel Nordica að viðstöddu fjölmenni. Að loknu ávarpi ráðherra kynnti Dóra Guðrún Guðmundsdóttir starfshópinn sem vann að stefnunni með ráðherra og það helsta sem stefnan felur í sér. Þórólfur Þórlindsson fylgdi þar næst stefnunni úr hlaði. Barnakór Laugarnesskóla söng tvö lög og að lokum var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu rannsókna- og samstarfs ráðuneytisins, HÍ, HR og LHS.

Á vef heilbrigðisráðuneytisins eru nánari fréttir af kynningunni og hægt að nálgast stefnuna og önnur skjöl sem voru til umfjöllunar á fundinum.
Myndir frá kynningu heilsustefnunnar (smellið á myndirnar til að sjá þær stærri)
|
![]() |
![]() |
| Dóra Guðrún Guðmundsdóttir | Barnakór Laugarnesskóla söng fyrir gesti. | Gestir kynningarfundarins |



