Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Margir áhugasamir um heilsueflingu á vinnustöðum

25.9.2008

Fyrirlestrarnir sem fluttir voru á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum, sem Lýðheilsustöð, Vinnueftirlitið og Háskólinn í Reykjavík stóðu að 18. sept. sl., eru nú komnir á vefinn. Ef marka má aðsókn að ráðstefnunni þá er mikill áhugi á málefninu því áætlað er að á milli 160-170 manns hafi sótt hana.

Á ráðstefnunni voru flutt fjölmörg erindi þar sem sjónum var beint að ávinningi heilsueflingar á vinnustöðum, m.a. útfrá hagfræðilegum og samfélagslegum áhrifum, og hvernig auka megi þekkingu á þessu sviði. Lýðheilsustöð og Vinnueftirlitið gáfu fyrr á þessu ári út heftið Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum, sem dreift var á ráðstefnunni, og hægt er að skoða og panta hér í gegnum heimasíðuna. forsida_heilsueflingarbaklings

Fyrirlestra ráðstefnunnar og fleiri fréttir má nálgast á heimasíðunni Heilsueflingu á vinnustöðum.

 

 

 

 

 

vinnuradst-John_Griffiths  vinnuradst--BarbaraBattelKirk   vinnuradst-YogaShala

John Griffiths

Barbara Battel-Kirk

Jógastund í boði Yoga Shala

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica