Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - loksins á Íslandi!

3.9.2008

STYRKLEIKAR – HAMINGJA – HEILSA OG VELLÍÐAN „What would happen if we studied what is right with people?“ Lýðheilsustöð, ásamt fleirum, býður til málstofu og vinnusmiðju um jákvæða sálfræði dagana 11. og 12. september.

lydheilsust_2Gedlaeknafelag_Islands-merkiHaskoli_Islands_MERKIHaskolinn_i_Reykjavik_MERKI

Á síðasta áratug hafa rannsóknir innan sálfræðinnar á jákvæðum eiginleikum mannsins aukist til muna undir formerkjum jákvæðrar sálfræði eða positive psychology. Nú gefst Íslendingum loksins kostur á að heyra meira um þessa hugmyndafræði þar sem tveir þekktir fræðimenn á þessu sviði verða hér með fyrirlestra og fræðslu.

Það eru þeir Robert Biswas-Diener, sem ferðast hefur um heiminn til að kanna hvað það er sem gerir fólk á ólíkum stöðum hamingjusamt og Tod Kashdan, en hann hefur m.a. rannsakað forvitni og áhrif þess á heilsu fólks að hafa tilgang í lífinu.
Fólk er hvatt til að missa ekki af einstöku tækifæri til að fræðast um þessa hugmyndafræði og skrá hjá sér tímasetningar dagskrárinnar:

Dagskrá

Málþing í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 11. september, kl.14-17.

Málþing í Háskóla Íslands, föstudaginn 12. september, kl. 8:30-11:30.

Lokuð vinnustofa fyrir fagfólk í HÍ, föstudaginn 12. september, kl. 13-16.
.

Málþingin eru öllum opin og aðgangur ókeypis.

Vinnustofan kostar 2000 kr. og þar sem sætafjöldi er takmarkaður er nauðsynlegt er að skrá sig: www.lydheilsustod.is/skraning

Dagskrá og kynningarefni í pdf formi til útprentunar:

JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - dagskrá



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica