Þekkingatorg - samstarf um upplýsingamiðlun á heilbrigðissviði
Þekkingartorg er aðgangsstýrt netsvæði og samanstendur það af verkefna- og upplýsingamiðlun. Markmið með rekstrinum er þríþætt:
- Torginu er ætlað að tengja sérfræðinga saman í gegnum vefstýrða verkefnamiðlun. Með þeim hætti geta t.d. stofnanir miðlað verkefnum og kallað eftir þekkingu til að leysa þau og háskóladeildir fengið verkefni fyrir nema og/eða starfsmenn sína.
- Byggja upp upplýsingamiðlun um heilbrigðistengd gögn sem til eru á Íslandi og aðgengi að þeim.
- Vera umræðuvettvangur þar sem hægt er að ræða íslensk heilbrigðismál og koma málefnum og rannsóknum á framfæri er varða heilbrigðismál og stefnumótun á heilbrigðissviði.
Tengliður Lýðheilsustöðvar við Þekkingatorgið er Stefán Hrafn Jónsson.
