Skilafrestur á rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2007
Eftir mjög góðar viðtökur hjá landsmönnum sem valdir voru til þátttöku í rannsókninni hefur verið ákveðið að framlengja skilafresti til að enn fleiri sjái sér fært að skila inn útfylltum spurningalistum. Um happdrættisvinninga í ,,Könnun á heilsu og líðan Íslendinga árið 2007"
Um þessar mundir eru enn að berast svör við póstkönnun Lýðheilsustöðvar og samstarfsaðila á heilsu og líðan Íslendinga árið 2007.
Þar sem þátttakendur hafa þurft mismunandi langan tíma til að senda inn svör hafa stjórnendur rannsóknarinnar ákveðið að draga út happdrættisvinninga eftir að svör hafa borist frá sem flestum þátttakendum sem geta tekið þátt. Gert er ráð fyrir að nöfn 5 þátttakenda verði dregin út um mánaðarmótin febrúar-mars 2008 og því gefst þeim, sem enn hafa ekki sent inn svör, tími til að senda okkur spurningalista.
Framkvæmd
Strax við móttöku á innsendum spurningalista er kápan, með útsendingar- og happdrættisnúmeri, tekin af spurningalistum. Stjórnendur rannsóknarinnar vita þannig hvaða þátttakendur hafa svarað en ekki er hægt að sjá hver svarar hvaða spurningalista. Þannig er nafnleynd tryggð.
Þegar nöfn þátttakenda hafa verið dregin út munu stjórnendur rannsóknarinnar hafa samband við þá heppnu, símleiðis eða með pósti, og senda þeim ávísun í ábyrgðarpósti. Happdrættisnúmer þátttakenda verða birt á vefsíðu stofnunarinnar en ekki nöfn þeirra og þannig er nafnleynd þátttakenda virt.
Þetta fyrirkomulag er nauðsynlegt til að hlíta lögum og reglum um persónuvernd.
Framkvæmdarstjórn könnunnar á heilsu og líðan Íslendinga 2007
