Samningur um heilsueflingu og forvarnir í framhaldsskólum

Það voru ráðherrarnir Guðlaugur Þór Þórðarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem undirrituðu samninginn ásamt Þórólfi Þórlindssyni, forstjóra Lýðheilsustöðvar, auk fjölda fulltrúa SÍF. Undirritunin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu að fjölda manns viðstöddum.
Guðlaugur Þór nefndi að með verkefninu væri ætlunin, meðal annars, að bregðast við vímuefnaneyslu á meðal framhaldsskólanema og hversu mikilvægt væri þar að unga fólkið vildi sjálft efla eigið heilbrigði. Unga fólkið hefði sjálft átt frumkvæði að því að vilja stuðla að öflugri forvörnum hvaða vímuefni snertir og nefndi í því sambandi foreldra og vinahóp Susie Einarsdóttur en hún lést sviplega fyrr á þessu ári. Fram kom að öflugt starf á meðal grunnskólanema hefði skilað góðum árangri en á einu sumri – sumrinu frá lokum 10. bekkjar og byrjun framhaldsskólanáms – hallaði oft undan fæti hjá unga fólkinu og við þessu þyfti að bregðast.
Tengill í ávarp heilbrigðisráðherra.
Þorgerður Katrín talaði um mikilvægi þess að ráðuneytin tvö horfðu markvisst til framtíðar saman og að með lagasetningum væri verið að huga að velferð unga fólksins á öllum sviðum. Hún þakkaði unga fólkinu sérstaklega fyrir að þeirra þátt í verkefninu, því þau nota það tungutak sem framhaldsskólanemarnir tala og þeirra hugmyndir og framlag væri því mjög mikilvægt.
Gabríela Unnur Kristjánsdóttir, formaður SÍF, sagðist hafa þá trú að takast myndi að koma á góðu forvarnastarfi þegar allir þessir aðilar væru að koma þar að. ,,Og við munum leggja okkur öll fram,” sagði hún.
Formaður hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskóla, Árni Már Þrastarson, lýsti yfir ánægju sinni með að leitað væri til nemenda sjálfra og þeir beðnir að koma með hugmyndir að leiðum sem gætu virkað til að ná til ungs fólks á framhaldsskólaaldri.
Þórólfur Þórlindsson fagnaði þessum góða degi og líta mætti á hann sem upphafið að fagurri vináttu. Þegar þessi tvö mikilvægu ráðuneyti taka höndum saman um að efla velferð framhaldsskólanema á öllum sviðum – og í samvinnu við nemendurna sjálfa – mætti búast við árangri. Og megin breytingin frá fyrra forvarnastarfi, á þessum vettvangi, er að nú koma báðir þessir lykilaðilar þarna að. Lýðheilsustöð mun leiða vinnu faghópsins sem að verkefninu koma og allir sérfræðingar Lýðheilsustöðvar væru síðan boðnir og búnir að vinna að verkefninu, hver á sínu sviði.
Forvarnir og heilsuefling á víðu sviði
Verkefnið er til þriggja ára og markmið samnings eru að
- stuðla að bættri almennri líðan og heilsu nemenda
- efla forvarnir gegn vímuefnum í framhaldsskólum
- bæta og efla ráðgjöf við nemendur á sem flestum sviðum sem snerta velferð þeirra
- hvetja nemendur til að taka ábyrgð á eigin heilsu og stuðla að heilbrigðum lífsháttum
Menntamálaráðuneytið leggur til starfsmann í þrjú ár til að vinna að verkefninu en hlutverk hans verður að efla starf forvarnarfulltrúa og náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum. Viðkomandi mun einnig beita sér fyrir samráði við skólameistara framhaldsskóla um forvarnaraðgerðir.
Af hálfu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins verður lögð áhersla á að efla tengsl milli heilsugæslu og allra framhaldsskóla.
Lýðheilsustöð mun leggja til tvo starfsmenn (annan í 50% starfi) í þrjú ár til að vinna að verkefninu.
Hlutverk starfsmanna Lýðheilsustöðvar verður að halda námskeið fyrir nemendur, forvarnarfulltrúa í framhaldsskólum og aðra sem að heilsueflingu og forvörnum koma og að leiða vinnu faghóps samstarfsaðila.
Nemendafélög framhaldsskólanna munu samkvæmt samningnum standa fyrir kynningum meðal framhaldsskólanema og vinna verkefni um heilsueflingu og forvarnir.
Menntamálaráðuneyti, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og Lýðheilsustöð munu árlega leggja til fjármagn til aðgerða sem tengjast markmiðum verkefnisins.
