Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Göngum í skólann í október

3.10.2007

Gaman_að_ganga_með_ríkislögreglustjóranum. Smella á mynd til að stækkaNemendur í 1. bekk grunnskóla Seltjarnarness hófu í dag formlega verkefnið Göngum í skólann með því að ganga með ríkislögreglustjórarnum, bæjarstjóra Seltjarnarness, kennurum og fleirum í nágrenni skólans. Í um 40 löndum víðs vegar um heiminn ganga nemendur og foreldrar í skólann í októbermánuði en Göngum í skólann-dagurinn er 3. október.

Göngum í skólann. smella á mynd til að opna heimasíðuna.Verkefninu Göngum í skólann er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla en með því hreyfa allir sig meira, minni umferð verður við skólana og ganga um hverfið vekur fólk til vitundar um sitt nánasta umhverfi og öryggi í umferðinni.

Ísland tekur nú í fyrsta sinn þátt í þessu alþjóðlega verkefni en á síðasta ári tóku milljónir barna þátt í verkefninu í um fjörutíu löndum víðs vegar um heim. Bakhjarlar Göngum í skólann eru Lýðheilsustöð, Umferðarstofa (ásamt móðurskólum í umferðarfræðslu), Ríkislögreglustjórinn, Menntamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Heimili og skóli.

Leiðtogaskóli í umferðarfræðslu

Umferðarmynd 1. bekkjar, Mýrarhúsaskóla. smella á mynd til að stækka. Grunnskóli Seltjarnarness er leiðtogaskóli í umferðarfræðslu á höfuðborgarsvæðinu og því þótti við hæfi að hefja verkefnið formlega þar. Fulltrúar allra þeirra sem standa að verkefninu mættu til að hefja verkefnið með börnunum en Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar, lýsti verkefninu.
Síðan gengu börn í 1. bekk með þeim fullorðnu um nágrenni skólans en áður höfðu þau unnið saman stóra veggmynd um börn að ganga um hverfið sitt og hvernig á að hegða sér í umferðinni.

   

 

Göngum í skólann hefst, fundargestir í Mýrarhúsaskóla. Smella á mynd til að stækka.

Fundargestir í Mýrarhúsaskóla

Þórólfur Þórlindsson og Héðinn Björnsson, frá Lýðheilsustöð. Smella á mynd til að stækka.

Þórólfur Þórlindsson og Héðinn Björnsson

 

 

Í Mýrarhúsaskóla, nemendur 1. bekkjar koma í salinn. Smella á mynd til að stækka.

Nemendur 1. bekkjar í Mýrarhúsaskóla ganga í salinn.

        Gengið með bæjarstjóranum á Seltjarnarnesi. Smella á mynd til að stækka.

Lagt af stað í gönguferð með Jónmundi bæjarstjóra.

Rétta upp hönd þeir sem komu gangandi í skólann í morgun! Smella á mynd til að stækka.

Réttið upp hönd sem komuð gangandi í skólann í morgun!

Fulltrúar bakhjarla Göngum í skóla. smella á mynd til að stækka.

F.v. Örvar Ólafsson, Sigrún A. Þorsteinsdóttir, Kristín B. Þorsteinsdóttir, Björk Einisdóttir,
Haraldur Jóhannessen og Þórólfur Þórlindsson.

 



Októbermánuður er ,,göngum í skólann“ mánuður!

Gengid_yfir_gangbraut_a_Seltjarnarnesi_1Allir grunnskólar í landinu hafa verið hvattir til að taka þátt í Göngum í skólann og skrá skólann til leiks. Þeir hafa fengið senda veggmynd Göngum í skólann og hnapp til að tengjast beint á heimasíðu verkefnisins: www.gongumiskolann.is en þar koma fram allar helstu upplýsingar um verkefnið. Og þó að verkefnið hafi ekki hafist formlega fyrr en í dag þá hafa þegar þó nokkrir skólar tilkynnt þátttöku sína.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica