Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Of þungar skólatöskur geta skaðað bakið

24.9.2007

skólatöskuálfurÁrlega standa iðjuþjálfar fyrir svokölluðum Skólatöskudögum þar sem fram fer sérstök fræðsla um mikilvægi þess að skólatöskur séu ekki of stórar né of þungar. Haustið 2008 kom út nýr fræðslubæklingur um þetta efni, en hér á eftir er fræðsluefni sem birtist árið 2007. 

Iðjuþjálfafélag Íslands stendur á hverju ári fyrir Skólatöskudögunum víðs vegar um landið og ber átakið yfirskriftina „Létta leiðin er rétta leiðin“.

Smelltu á myndina til að stækkaSkólatöskudagar eru haldnir af iðjuþjálfum um allan heim í september að bandarískri fyrirmynd. Um 50 íslenskir iðjuþjálfar auk iðjuþjálfanema við Háskólann á Akureyri, heimsækja um 40 grunnskóla vítt og breitt um landið þessa daga. Þetta er annað árið sem félagið stendur fyrir þessum viðburði á landsvísu.

Á Skólatöskudögum fræða iðjuþjálfar nemendur, foreldra og kennara um rétta notkun á skólatöskum. Nemendur fá að vigta skólatöskurnar sínar og reikna út hvort skólataskan sé af æskilegri þyngd miðað við þeirra eigin líkamsburði. Börnin fá einnig í hendurnar leiðbeiningar um hvernig taskan á að vera stillt, hvernig best sé að raða í hana og hvaða þætti er mikilvægt að horfa á þegar ný taska er keypt.

Iðjuþjálfarnir munu auk þessa veita almenna fræðslu um rétta líkamsbeitingu en stoðkerfisvandi barna og ungmenna er vaxandi vandamál og forvarnir geta bætt líðan þeirra. Iðjuþjálfar vinna að því að styrkja einstaklinga í daglegum athöfnum svo frammistaða þeirra og þátttaka sé með sem bestu móti. Margir iðjuþjálfar starfa í tengslum við skóla hér á landi og styðja nemendur í daglegum athöfnum. Í skólum aðstoða iðjuþjálfar börn með víðtæka færnivanda svo sem varðandi skrift, þroska og hegðun.

Skólatöskudagar 2007: 24. - 28. september

Skólatöskudagar 2008: 22. -26. september

Ráðleggingar varðandi hvernig best sé að stilla og raða í skólatösku má sjá með því að smella á myndina hér vinstra megin. Þá kemur upp sambærilegt PDF-skjal (í nýjum glugga).

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica