Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Hraust saman - eða ,,Healthy Together"- verkefnið hefst á Íslandi

30.8.2007

Lýðheilsustöð, Háskólinn í Reykjavík og Vinnueftirlitið, sem stýrir verkefninu, hafa tekið höndum saman um aðHealthy_together standa að verkefninu Hraust saman - eða ,,Healthy Together" - sem snýst um heilsueflingu á vinnustöðum, með áherslu á smáa og meðalstóra vinnustaði.

Leonardo2.2Fjarkennsluverkefnið Hraust saman – eða „Healthy Together“ eins og það kallast á ensku – hefur hlotið styrk úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætluninni til tveggja ára (október 2006–október 2008).
Þrjú Evrópulönd taka þátt í verkefninu: Ísland, Írland og Ítalía. Íslensku þátttakendurnir eru: Vinnueftirlitið, sem stýrir verkefninu, Háskólinn í Reykjavík og Lýðheilsustöð.
Þeir aðilar frá Írlandi sem taka þátt eru Health Services Executive í Galway og National University of Ireland í Galway og fulltrúi Ítala er University of Perugia.

Fjarkennsluefni

Markmið verkefnisins er að stuðla að góðri heilsu vinnandi fólks á litlum og meðalstórum vinnustöðum, þ.m.t. á landsbyggðinni. Þessa dagana er verið að vinna fjarkennsluefni og á komandi vetri (feb.–mars 2008) verða haldin námskeið á háskólastigi um forvarnir og heilsueflingu á vinnustöðum í öllum þátttökulöndum verkefnisins.
Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við vinnuvernd og heilsueflingu á vinnustöðum, þeim sem áhuga hafa á að sinna slíkum verkefnum sem og stjórnendum á vinnustöðum. Helsta nýlunda verkefnisins er að skapaður verður vettvangur þar sem hagsmunaaðilar, geta öðlast þekkingu á því hvernig efla megi heilsu vinnandi fólks á litlum og meðalstórum vinnustöðum og nýta til þess þau úrræði sem eru til staðar í heimabyggð þeirra.

Þörf á nýjum aðferðum og fræðsluefni

Síðasta vetur var gerð þarfagreining fyrir verkefnið. Haldnir voru fundir með rýnihópum í löndunum þremur og gerð rafræn spurningakönnun. Helstu niðurstöður þarfagreiningarinnar voru eftirfarandi:

  • Leggja þarf meiri áherslu á þjálfun þeirra sem starfa eða vilja starfa að heilsueflingu og forvörnum á vinnustöðum.
  • Samstarf allra hagsmunaaðila í sveitarfélögum er afar mikilvægt ·
  • Þörf er á að útbúa leiðbeiningar, gátlista og önnur tól sem nýst geta við að efla heilsu vinnandi fólks.
  • Skortur er á fræðsluefni og þá sérstaklega efni er varðar streitu og andlega heilsu á vinnustöðum.
  • Mikilvægt væri að beita aðferðum sem virkja stjórnendur og starfsmenn á markvissan hátt við að undirbúa og koma á heilsueflingu á vinnustöðum.

Þegar á heildina er litið sýndu niðurstöður að mikil þörf er fyrir nýjar aðferðir og fræðsluefni fyrir heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Nánari upplýsingar um ,,Healthy Together" verkefnið er að finna á vefsíðu þess: www.healthy2gether.net



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica