Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Þórólfur Þórlindsson settur forstjóri Lýðheilsustöðvar í námsleyfi Önnu Elísabetar

1.8.2007

Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, er í eins árs leyfi frá störfum frá og með 1. ágúst 2007. Um er að ræða námsleyfi en Anna Elísabet mun hefja doktorsnám í lýðheilsufræðum við Brunel University í London. Anna Elísabet hefur verið forstjóri Lýðheilsustöðvar síðastliðin fjögur ár, eða frá stofnun hennar árið 2003.

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra hefur sett Dr. Þórólf Þórlindsson forstjóra Lýðheilsustöðvar til eins árs.Dr. Þórólfur Þórlindsson hefur gegnt starfi prófessors við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur sinnt viðamiklum félagsvísindarannsóknum á hegðan ungmenna, birt fjölmargar ritrýndar vísindagreinar í alþjóðlegum tímaritum og ritað bækur um efnið.

Dr. Þórólfur hefur um árabil lagt sitt af mörkum í forvarnastörfum, m.a. verið formaður Áfengis- og vímuvarnarráðs. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum, m.a. sem deildarforseti félagsvísindadeildar Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála. Þá hefur Dr. Þórólfur gegnt formennsku og setið í fjölmörgum ráðum og nefndum, verið formaður Félags háskólakennara og Félags prófessora og varaformaður Vísindaráðs.

Starfsemi Lýðheilsustöðvar heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og þar starfa rúmlega 20 manns. Með starfsemi sinni er Lýðheilsustöð ætlað að efla og samræma lýðheilsustarf í landinu, efla kennslu og rannsóknir á sviði lýðheilsu, vinna að lýðheilsuverkefnum á eigin vegum og í samvinnu við aðra sem og að byggja upp þekkingasetur allra landsmanna, fagfólks jafnt sem almennings, á þessu sviði. Lýðheilsustöð er stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu, tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og er í tengslum við aðra sem starfa á sviði lýðheilsu.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica