Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Ársskýrsla Lýðheilsustöðvar 2006

30.7.2007

arsskyrsla_2006Út er komin hjá Lýðheilsustöð, Ársskýrsla 2006. Þessi ársskýrsla, sem nú er gefin út, nær yfir starfsemi Lýðheilsustöðvar á árinu 2006 en að auki er minnst á nokkra mikilvæga viðburði sem áttu sér stað á árinu 2005.

Í ávarpi sínu í skýrslunni segir Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri meðal annars:

„Lýðheilsustöð hóf starfsemi 1. júlí 2003 en fyrsta ársskýrslan kom út og var kynnt á fyrsta ársfundi Lýðheilsustöðvar í maí 2005. Engin ársskýrsla kom út fyrir starfsárið 2005 þar sem lögð var áhersla á að vinna og gefa út stefnu, aðgerðaráætlun og framtíðarsýn Lýðheilsustöðvar en það rit var gefið út og kynnt í september 2006.

Árangur lýðheilsustarfs krefst yfirgripsmikillar þekkingar og náins samstarfs innan samfélagsins sem og milli samfélaga og því hefur Lýðheilsustöð, í uppbyggingarstarfi sínu, lagt ofurkapp á mikla samvinnu við hagsmunaaðila á Íslandi sem og erlendis. Lýðheilsustöð á sér sín gildi en þau eru þekking, árangur, virðing og samvinna og eftir þessum gildum störfum við markvisst.“

Innan Lýðheilsustöðvar er unnið að hvers konar verkefnum á sviði heilsueflingar- og forvarna sem ætlað er að skapa landsmönnum tækifæri til heilbrigðs lífs. Verkefni Lýðheilsustöðvar hafa síðustu misseri verið í senn fjölbreytt, krefjandi og gefandi. Fræðslustarf, ráðgjöf og útgáfa á vegum stöðvarinnar hefur verið umtalsverð og þátttaka í rannsóknaverkefnum og hvers konar fagráðstefnum sömuleiðis. Landsnefnd um lýðheilsu og fagráð um áfengis- og vímuvarnir, manneldi, slysavarnir, tannvernd og tóbaksvarnir starfa með Lýðheilsustöð að málefnum lýðheilsu. Einnig taka margir starfsmenn stöðvarinnar þátt í ýmsum samstarfshópum og nefndum. Í ársskýrslunni er sagt frá öllum helstu þáttum starfseminnar, verkefnum og samstarfi.

Skoða skýrsluna í PDF útgáfu



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica