Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Morgunverðarfundur: samstarf um meira framboð af hollum mat

22.3.2007

Miðvikudaginn 28. mars bjóða heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð og Samtök iðnaðarins til morgunverðarfundar á hótel Nordica þar sem til umfjöllunar er samstarf um aukið framboð á hollum matvörum, markaðssetning, vöruþróun og skammtastærðir. Fundurinn hefst kl. 8:15 og er öllum opinn og ókeypis.

Skráning á fundinn er í: www.lydheilsustod.is/skraning
(vinsamlega takið fram heiti fundarins) og í síma 5 800 900. Skráningu lýkur á hádegi þriðjudaginn 27. mars

Enginn aðgangseyrir. Húsið verður opnað klukkan 8:00 og morgunverður hefst klukkan 8:15.

     

kl.  DAGSKRÁ
8:30 –8:40  Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, setur fundinn
8:40 – 8:55  Stórir skammtar – ný viðmið? Anna E. Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar
8:55 – 9:15

 Vöruþróun - næring - hreyfing; stefna matvælaiðnaðarins 
 Ragnheiður Héðinsdóttir, matvælafræðingur hjá Samtökum iðnaðarins

Heilsustefna Myllunnar, Iðunn Geirsdóttir, gæðastjóri Myllunnar

9:15 – 9:30 Er árangursríkara að markaðssetja óhollar matvörur?
Friðrik Larsen, markaðsfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík
9:30 – 9:40 Skyndibitastaðir- Hvað geta skyndibitastaðir gert til að bæta framboð á hollum mat?
Fulltrúi frá skyndibitakeðju
9:40 – 10:00 Pallborðsumræður:
Ragnheiður Haraldsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Anna E. Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar,
Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Samtökum iðnaðarins,
Guðrún E. Gunnarsdóttir, formaður Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands,
Friðrik Larsen, lektor við Háskólann í Reykjavík
Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson, sjónvarpsmaður

Dagskrá í pdf skjali

 

 Sjá greinar um skammtastærðir

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica