Heilbrigðisráðherra kynnir áherslur í lýðheilsumálum
Kynningarfundur fór fram í húsnæði Heilsugæslunnar í Mjódd - Miðstöð heilsuverndar barna og auk ráðherra tóku til máls Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, og Geir Gunnlaugsson, yfirlæknir Miðstöðvarinnar.
Fram kom i máli ráðherra að þar sem unnið er að forvörnum og heilsueflingu mjög víða í samfélaginu þá þurfi að skipuleggja forvarnastarfið í landinu betur til að verkefni skarist síður, hámarksárangur náist og nýting fjármuna verði sem hagkvæmust. Liður þar í er að ráðherra ætlar að endurskoða lög um Lýðheilsustöð.
Ennfremur boðaði ráðherra að sem hvatningu til góðra verka væri ætlun sín að veita í fyrsta sinn í vor Íslensku lýðheilsuverðlaunin.

Jafnframt hefur verið gefinn út bæklingurinn ,,Heilbrigði og forvarnir í sókn - með samtakamætti landsmanna" þar sem lesa má um áherslur ráðherra á sviði forvarna- og heilsueflingar.
