Ofþyngdinni sagt stríð á hendur
Evrópulönd undirrita sáttmála
Ofþyngdarvandinn eykst stöðugt í öllum löndum Evrópu og hefur tíðni ofþyngdar vaxið þrefalt síðust tvo
áratugi en afleiðingar offitu eru langvinnir sjúkdómar sem draga úr heilbrigði og minnka lífslíkur. Sérstaklega er varað við ofþyngdarþróun meðal barna og unglinga en vandinn mun fylgja þeim yfir á fullorðinsárin ef ekkert er að gert. Þá er ljóst að ofþyngd og offita er algengari meðal þeirra sem minna mega sín í samfélaginu sem eykur þannig enn á ójöfnuð. Ofþyngd hefur mikil áhrif á efnahag þjóða en almennt er talið að allt að 6% af útgjöldum til heilbrigðismála í Evrópu séu tilkomin vegna ofþyngdar og offitu.
Löndin eru sammála um að ofþyngdarþróunina sé hægt að stöðva og snúa við. Mikilvægt er að tekið sé mið af þyngdarþróun þjóðfélagsþegnanna í öllu stefnumótandi starfi þjóða og sveitarfélaga. Ábyrgðin verður að vera sameiginleg, einstaklinga, samfélags og stjórnvalda. Það er óásættanlegt að leggja ábyrgðina eingöngu á einstaklingana sjálfa. Mikilvægt er að sérstaklega sé hugað að viðkvæmum þjóðfélagsþegnum eins og börnum og efnaminni einstaklingum og fjölskyldum. Á sama tíma og lögð er áhersla á að koma í veg fyrir ofþyngd er mikilvægt að þeir þegar glíma við vandann fái réttu úrræðin til að snúa þróuninni við.
Rík áhersla er lögð á samábyrgð allra ráðuneyta þó hvatt sé til þess að heilbrigðisráðuneyti haldi utan um verkefnið. Bent er á nokkrar mögulegar leiðir stjórnvalda m.a. reglur um markaðssetningu á orkuríkum matvörum, sérstaklega til verndar börnum. Ítrekuð er nauðsyn þess að auka neyslu ávaxta og grænmetis og annarrar hollustuvöru meðal annars í skólum og á vinnustöðum auk þess að veita tækifæri til aukinnar hreyfingar. Loks er minnst á ábyrgð matvælaframleiðenda og fjölmiðla í baráttunni við ofþyngdarþróunina.
Markmið sáttmálans er að styrkja samstarf innan Evrópu í baráttunni við ofþyngdina þar sem rík áhersla er lögð á bætta næringu, aukna hreyfingu og almenna vellíðan meðal þegnanna. Hvatt er til meiri samræmingar sem auðveldar samanburð á lykilþáttum árangursmælikvarða.
