Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Foreldrum býðst ókeypis skemmtifræðsla um vímuefni

9.11.2006

Lýðheilsustöð býður foreldrum nemenda í 9. og 10. bekk að sjá skemmtifræðsluna hvað EF í Hafnarfjarðarleikhúsinu dagana 13., 14. og 15. nóvember. Ýmsar leiðir eru reyndar til vekja ungt fólk til umhugsunar um hættuna samfara neyslu vímuefna. Ein þeirra er að koma fræðslunni áleiðis á skemmtilegan og nýstárlegan hátt - eins og gert er í hvað EF-skemmtifræðslunni í Hafnarfjarðarleikhúsinu.

Smella á myndina af leikurunum í hvað ef! til að stækkaUm er að ræða leiksýningu sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á mjög nýstárlegan máta farið yfir staðreyndir um neyslu vímuefna. Markmiðið er að sýna unglingum að þeir hafa val og að margar saklausar ákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Það að reykja eina hasspípu eða vera í félagskap þeirra sem leggja stund á fíkniefnaneyslu getur hrundið af stað dapurlegri atburðarás.
Það að segja já við E-pillu getur verið fyrsta skrefið á langri og miður fallegri ævisögu.
Ungt fólk fær oft sína fyrstu fræðslu um vímuefni frá neytendum eða sölumönnum sem eru þá, að sjálfsögðu, oftar en ekki að gefa rangar upplýsingar vísvitandi! hvað EF!

Afhending miða á sýninguna

Foreldrar sem óska eftir að fá miða á sýninguna skrái þátttöku hjá: heimiliogskoli@heimiliogskoli.is

Fram komi: nafn/nöfn og dagsetning.

Miðarnir eru sóttir í miðasölu Hafnarfjarðarleikhússins fyrir sýningu og þarf þá að gefa upp nafn.

Aðstandendur og bakhjarlar

Það er 540 Gólf leikhús og SÁÁ, í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið, sem standa fyrir hvað EF skemmtifræðslunni.
Höfundar texta, ljóða og tónlistar eru þeir Einar Már Guðmundsson, rithöfundur,Valgeir Skagfjörð, rithöfundur/tónlistamaður og leikhópurinn en hann samanstendur af þeim: Felix Bergssyni, Guðmundi Inga Þorvaldssyni, Brynju Valdísi Gísladóttur og Orra Huginn Ágústssyni.

Sá háttur hefur verið á að sýningunum að fyrirtæki, stofnanir eða foreldrafélög hafa keypt sýningu fyrir viðkomandi skóla og boðið nemendum skólans á þær.
Nú þegar hafa fjölmargir nemendur í níunda og tíunda bekk grunnskóla séð sýninguna á skólatíma en það er nýlunda að foreldrum bjóðist að sjá hana. Það er Lýðheilsustöð, í samstarfi við Heimili og skóla, sem býður foreldrum á sýningarnar 13., 14. og 15. nóvember og vonar að sem allra flestir nýti sér tækifærið.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica