Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Leiðir ESB til að draga úr áhrifum skaðlegrar áfengisneyslu í Evrópu

25.10.2006

Framkvæmastjórn ESB hefur sent frá sér orðsendingu um leiðir til að draga úr áhrifum skaðlegrar áfengisneyslu í Evrópu. Markmiðið er að styðja einstök ríki í þeirri viðleitni, en talið er að óhófleg áfengisneysla leiði með einum eða öðrum hætti til dauða 195 þúsund manna á ári í Evrópusambandsríkjunum.

Skaðsemi óhóflegrar áfengisneyslu

Áherslusvið sem tilgreind eru í orðsendingunni eru:

Leita leiða til að vernda sérstaklega ungt fólk og börn

Draga úr slysum og dauðsföllum af völdum áfengisneyslu í umferðinni

Minnka heilsutjón á fullorðnum og draga um leið úr neikvæðum efnahagslegum áhrifum áfengisneyslu

Auka þekkingu almennings á skaðsemi óhóflegrar áfengisneyslu

Safna og miðla upplýsingum.

Framkvæmdastjórnin tiltekur jafnframt mögulegar aðgerðir sem grípa má í þeirri viðleitni að hjálpa aðildarríkjum ESB í þessari baráttu. Meðal þess sem bent er á er fjármögnun sérstakra verkefna í gegnum heilbrigðisáætlun ESB og rannsóknaáætlanir, skoðanaskipti og miðlun reynslu og átaksverkefni sem framkvæmdastjórnin fjármagnar.

Orðsendingin varpar einnig ljósi á athyglisverðar og árangursríkar aðgerðir einstakra ríkja í baráttunni gegn óhóflegri áfengisneyslu sem kann að vera fyrirmynd fyrir önnur ríki. Þá er lagt til að komið verið á fót sérstökum vettvangi aðildarríkja ESB (Alcohol and Health Forum) með leiðbeiningum fyrir áfengisiðnaðinn.

Fram kemur í orðsendingunni að ekki sé markmiðið að koma með tillögur um lagasetningu um þessi mál af hálfu framkvæmdastjórnarinnar, enda sé þetta viðfangsefni einstakra ríkja.
Í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórninni segir framkvæmdastjóri heilbrigðismála hjá ESB:

,,Binge drinking, under-age drinking and drink-driving are real public health issues in Europe, especially among young people. The Commission is not targeting moderate alcohol consumption, but seeks to actively support Member States measures to reduce the harm caused by alcohol abuse. This Communication aims to promote discussion and cooperation at European level more actively by creating fora to exchange good practices. I also believe that industry can do more to reduce alcohol harm, promote responsible drinking and improve consumer information. The Commission is committed to supporting this process by bringing the relevant actors together, promoting cooperation and funding projects in this area."

Sjá fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórn ESB:

Sjá upplýsingar um skaðsemi óhóflegrar áfengisneyslu:

Sjá Alcohol-Related harm in Europe - Key data

Efni þessu tengt á heimasíðu Lýðheilsustöðvar:

Áfengi - engin venjuleg neysluvara

Ungt fólk og skaðleg neysla áfengis

Áfengisauglýsingar beinast jafnvel að börnum

Fræðslubæklingurinn Hvað veist þú um áfengi?


Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica