Örugg frá upphafi -vinnuvernd ungmenna
Árleg evrópsk vinnuverndarvika stendur nú yfir. Í ár er vinnuverndarvikan helguð ungu fólki og er yfirskrift hennar Örugg frá upphafi. Af þessu tilefni stendur Vinnueftirlitið fyrir morgunverðarfundi á Grand Hóteli, þriðjudaginn 24. okóber, þar sem flutt verða erindi um vinnuaðstæður og vinnuslys ungs starfsfólks.
Íslensk ungmenni byrja snemma að vinna hér á landi og nokkuð er um að þau vinni langan vinnutíma og taki á sig ábyrgð umfram það sem aldur þeirra og þroski gefur tilefni til. Ungu fólki er hættara en hinum eldri við að lenda í vinnuslysum og óhöppum en slíkt má m.a. rekja til skorts á þjálfun, starfsreynslu og vanþekkingar á mikilvægum þáttum vinnunnar.
Viðurkenningar veittar
Morgunverðarfundurinn á Grand Hóteli, 24. október kl. 8.30 – 10:00, verður helgaður vinnuaðstæðum ungs fólks og á honum verða erindi flutt um vinnuaðstæður og vinnuslys ungs starfsfólks. Einnig verða sigurvegurum í myndbanda- og veggspjaldakeppni ungs fólks (að 20 ára aldri) veittar viðurkenningar sem og vinnustöðum sem eru til fyrirmyndar í því að sinna vinnuvernd ungra starfsmanna.
Morgunverðarfundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Lesa dagskrá.
Skráning fer fram í síma 550-4600 eða í netfangið vinnuverndarvikan@ver.is
