Aðgerðaáætlun Lýðheilsustöðvar
Mannrækt
Fundarstjóri kynningarfundarins var Laufey Steingrímsdóttir og sagði hún aðeins frá hversu mikil vinna lægi að baki ritinu, sem allir starfsmenn hefðu tekið þátt í, en vinnuna leiddi forstjóri
Lýðheilsustöðvar, Anna Elísabet Ólafsdóttir. Því næst tók Siv Friðleifsdóttir til máls og sagði frá því að hún hefði kynnt sér ritið vel áður en það fór í prentun og nefndi nokkur atriði, sem þar koma fram, sem hún vil jafnframt leggja áherslu á í sínu starfi. Anna Elísabet fór síðan yfir nokkur atriði í ritinu sem hún vildi vekja athygli á. Meðal þess sem fram kom í máli Önnu var að þó á Lýðheilsustöð sé verið að vinna að sérstökum málaflokkum, s.s. tóbaksvörnum, tannheilsu og vímuefnavörnum, þá sé samvinna þvert á málflokkana sífellt að verða meiri og þar með hugað að mörgum áhrifaþáttum heilsu. Starfsfólk Lýðheilsustöðvar vilji því gjarnan fella saman orðin forvarnir og heilsuefling í eitt orð, þ.e. mannrækt.
![]() Anna Elísabet Ólafsdóttir (sjá fleiri myndir neðst) |
Siv Friðleifsdóttir og Laufey Steingrímsdóttir |
Góð æviár
Í ritinu er samantekt sem gefur gott yfirlit yfir heilbrigði Íslendinga, dánarorskir, sjúkdóma sem fækka góðum æviárum og helstu áhættuþætti fyrir glötuð góð æviár. Fram kemur að helstu dánarmein Íslendinga eru hjarta- og æðasjúkdómar og krabbamein en sjúkdómar sem fækka góðum æviárum á Íslandi eru hins vegar sjúkdómar af geðrænum toga. Forgangsröðun í mannræktarstarfi Lýðheilsustöðvar er því að líta til þeirra áhættuþátta sem valda glötuðum góðum æviárum en þeir tengjast málaflokkum lýðheilsustöðvar, forvörnum á sviði tóbaksvarna, áfengis- og vímuvarna, slysavarna, sem og heilsueflingu með markvissri geðrækt, bættu mataræði, tannheilsu og aukinni hreyfingu.
Í ritinu er farið í gegnum hlutverk, stefnu og framtíðarsýn Lýðheilsustöðvar sem og stefnumiðað árangursmat, sem stöðin hefur lagt til grundvallar í stefnumótunarstarfi sínu. Uppistaða ritsins er þó um markmið og leiðir lýðheilsustarfs. Settir hafa verið fram heilsuvísar, en einnig verkefnavísar, til að gera mögulegt að fylgjast með breytingum sem verða á heilsu og líðan þjóðarinnar í kjölfar mannræktarverkefna á vegum stöðvarinnar og margra fleiri sem starfa að lýðheilsusmálum í landinu.
Áfengisforvarnir
Af mörgu er að taka en til að taka dæmi úr þremur málaflokkum má nefna að Lýðheilsustöð mun hvetja til samráðs hagsmunaaðila þess efnis að áfram verði öflug áfengislöggjöf á Íslandi og að áfengislögin verði endurskoðuð og nokkrir þættir hennar gerðir skýrari, þ.á m. skýrari ákvæði um áfengisauglýsingar. Lýðheilsustöð er í samstarfi við sveitarfélögin í landinu um gerð forvarnarstefnu í sveitarfélögum og er að hefjast handa við sértækt verkefni sem gengur út á ábyrgan veitingahúsarekstur (bls. 35). Auk þessa hefur Lýðheilsustöð ávalt verið öflugur stuðningsaðili SAMAN-hópsins, hóps sem vinnur að forvörnum með fjölskylduna í forgrunni (bls. 40).
Geðrækt
Innan geðræktar leggur Lýðheilsustöð sérstaka áherslu á börn en það gerir hún m.a. með því að bjóða skólum landsins upp á nýtt geðræktarverkefni sem ætlað er 5-6 ára börnum. Verkefnið Vinir Zippýs er námsefni þar sem börn læra að þekkja og tileinka sér aðferðir til að ráða fram úr erfiðleikum sem þau standa frammi fyrir, geta sagt hvernig þeim líður og ekki síður að geta sýnt öðrum börnum samkennd og stuðning þegar það á við. Með þessu verkefni vill Lýðheilsustöð leggja sitt af mörkum til að bæta líðan barna í skólum og draga úr einelti (bls.43).
Ofþyngd
Loks má nefna markmið Lýðheilsustöðvar um að draga úr þróun ofþyngdar og offitu (bls 68). Megin verkefni í þeirri vinnu er verkefnið Allt hefur áhrif – einkum við sjálf ( bls.72) og skólafræðslan (bls.75). Lýðheilsustöð bendir þó á að varlega þurfi að fara í umræðunni um ofþyngd m.a. vegna þessa að 23% léttustu stúlknanna í 10. bekk grunnskólanna telur að þær þurfi að léttast. Þessar stúlkur er allar langt frá því að vera að glíma við ofþyngd er eru undir þrýsting um tiltekið útlit á kostnað hreystis.
Ritið er hægt að panta beint héðan af síðunni, með því að hringja á skrifstofu Lýðheilsustöðvar í síma 5 800 900 eða nálgast vefútgáfu þess hér. Nánari upplýsingar hjá forstjóra Lýðheilsustöðvar, Önnu Elísabetu Ólafsdóttur í síma 8 400 900.
![]() |
|
|---|---|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |










