Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð tekur þátt í 3L-EXPÓ sýningunni

6.9.2006

Lýðheilsustöð er einn af fjölmörgum þátttakendum í 3L-EXPÓ sýningunni í Egilshöll, sem standa mun yfir dagana 7.-11. september. Auk þess að vera með bás, þar sem fram fer kynning á starfsemi og heimasíðu Lýðheilsustöðvar, þá munu tveir af verkefnisstjórum stöðvarinnar vera með fyrirlestur.

Smella á mynd til að opna heimsíðu sýningarinnarBás Lýðheilsustöðvar er númer F-19 og er staðsettur við skvass salinn. Starfsmenn Lýðheilsustöðvar skipta með sér vöktum á meðan á sýningunni stendur en þarna gefst sýningargestum gott tækifæri til að kynnast bæði starfsfólki og starfsemi stöðvarinnar.

.

.

Fyrirlestrar

Föstudaginn 7. september, kl. 15:20-15:35 Fytur Guðrún Guðmundsdóttir fyrirlestur um Vini Zippýs sem er geðræktarverkefni fyrir ung börn.


Föstudaginn 7. september kl. 15:40-15:55 Flytur Jakobína Árnadóttir fyrirlestur börn og um óbeinar reykingar.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica