Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Útivistartíminn breytist 1. september

31.8.2006

Reglur um útivistartíma barna og unglinga, skv. barnverndarlögum, breytast 1. september. SAMAN-hópurinn hefur staðið að útgáfu segulspjalda með útivistarreglunum, til að setja á ísskápa, sem send eru á heimili barna á ákveðnum aldri. Jafnframt gefur hópurinn út bæklinginn „18 ára ábyrgð – slaka á taumnum ekki sleppa“, ætlaður foreldrum nýnema í framhaldsskólum.

Það er einn af föstu liðunum í starfi SAMAN-hópsins að hvetja og styðja foreldrar í að fylgjaSmella á mynd til að stækka reglum um útivistartíma en þær reglur eru samkvæmt barnaverndarlögum.
Það skiptir miklu máli fyrir vellíðan barna að foreldrar standi saman um að halda þessar reglur t.d. hvað varðar svefn, slys og einnig dregur það úr líkum á að börnin fari að fikta við áfengi eða önnur vímuefni að útivistarreglunum sé fylgt.

Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 en 13 – 16 ára börn mega vera úti til kl. 22. Mikilvægt er að árétta að þetta er sá tími sem þau mega vera úti, foreldrar og forráðamenn geta að sjálfsögðu þrengt þennan tímaramma.

Undanfarin ár hafa sveitafélög sent segulspjöld með útivistarreglunum (til að setja á ísskáp) inn á heimili barna í ákveðnum árgöngum en SAMAN-hópurinn hefur séð um að láta útbúa spjöldin. Þau sveitafélög sem hafa hug á slíku geta pantað segulmottur með einkennismerki síns sveitarfélags. Hvert segulspjald kostar kr. 150.

„18 ára ábyrgð – slaka á taumnum ekki sleppa“

Skoða bæklingSAMAN–hópurinn er nú einnig að endurútgefa bæklinginn „18 ára ábyrgð – slaka á taumnum ekki sleppa“. Bæklingurinn er ætlaður foreldrum nýnema í framhaldsskólum. Þar eru rakin ýmis atriði sem vert er fyrir foreldra að hafa í huga þegar barn hefur nám á nýju skólastigi, s.s. að vera áfram til staðar, setja skýr mörk, ræða málin og leiðbeina. Menntamálaráðuneytið styrkti gerð bæklingsins.

Pantanir

Þau sveitarfélög sem vilja panta segulspjöld með útivistarreglum og þeir sem vilja panta bæklinginn „Slaka á taumnum –ekk sleppa“ geta haft samband við Hildi Björgu Hafstein (hildur@lydheilsustod.is, bs:580-0907). Segulspjöldin kosta kr. 150 en bæklingurinn er ókeypis. Viðtakandi þarf að greiða sendingarkostnað.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica