Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

18 ára ábyrgð – alltaf

13.7.2006

Smalla á mynd til að stækka: Barn, 18 ára ábyrgðÍ fjölmiðlum undanfarið hefur mikið verið rætt um eftirlitslausa unglinga á Smella á mynd til að stækka: unglingur, 18 ára ábyrgðbæjarhátíðum og tjaldstæðum víða um land. Nú þegar líður að verslunarmannahelgi nær þessi umræða hámarki og er sérstaklega talað um þátt foreldra. Sjálfræðisaldurinn er við 18 ára aldur og því hefur verið talað um 18 ára ábyrgð í þessu sambandi. Sú ábyrgð gildir alltaf og fer ekki í sumar- eða helgarfrí.

Nokkur atriði ættu foreldrar að hafa í huga:

  1. Elskið óhikað. Ef þið teljið það ekki gott fyrir barnið að fara á eigin vegum í ferðalag, segið nei og útskýrið af hverju þið svarið því til.
  2. Hafið samband við foreldra þeirra sem unglingurinn ætlar með. Ræðið þær reglur sem þið viljið að sé fylgt s.s. varðandi áfengi og tóbak og að hópurinn fylgist alltaf að.
  3. Gangið úr skugga um að það sé einhver ábyrgur fullorðinn með í för. Fáið símanúmer hjá þeim sem ætlar með þeim.
  4. Farið yfir ferðaáætlun með barninu og biðjið það að hafa samband ef hún breytist. Gangið úr skugga um að barnið sé vel útbúið.
  5. Öryggisnet. Látið unglinginn hafa þau símanúmer hjá ættingjum og vinum sem hann getur hringt í ef eitthvað kemur upp á og ekki næst í ykkur.
  6. Ræðið við unglinginn að þiggja aldrei far hjá neinum sem er undir áhrifum áfengis.
  7. Útvegið barninu ekki áfengi. Unglingur undir áhrifum áfengis er í meiri hættu á að lenda í vandræðum. Þegar foreldrar útvega áfengi eru þeir búnir að samþykkja drykkju barnsins og þá er líklegt að unglingurinn drekki meira en bara það sem mamma og pabbi létu í bakpokann. Hafið í huga að það er lögbrot að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára.

Margir foreldrar telja sig vel geta treyst sínu barni til að fara eftirlitslausum í ferðalög. Flestir unglingar standa undir því trausti. Þær aðstæður sem geta komið upp, og hafa komið upp, geta hins vegar reynst unglingum þungbærar og erfiðar. Foreldrar hafa sýnt að með því að vera samtaka geta þeir breytt ýmsu til betri vegar t.d. reglur um útvistartíma ungmenna. Nú þarf að taka á eftirlitslausum „skemmtunum“ unglinga og þar eru foreldrar lykilaðilar.

Aðrar nýlegar umfjallanir:

Unglingadrykkja og útihátíðir, umfjöllun á NFS 12. júlí 2006

Hvaða lögbrot er í lagi að fremja?

Ungt fólk og skaðleg neysla áfengis



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica