Hvaða lögbrot er í lagi að fremja?
Sumarið er hættutími fyrir unglinga
nota tóbak, drekka áfengi, neyta ólöglegra vímuefna eða aka undir áhrifum og langt yfir löglegum hraða. Viðburðir eins og 17. júní skapa sérstaka hættu. Þessa dagana og mánuði eru ýmsir aðilar að birta skilaboð til að minna á þetta - og þeirra á meðal eru Lýðheilsustöð og SAMAN-hópurinn.Hér á síðunni má sjá sýnishorn af þeim skilaboðum sem eru að birtast, bæði hvað snertir unga fólkið sem og aðra landsmenn.
| Skilaboð frá Lýðheilusstöð | ||
|---|---|---|
![]() |
|
![]() |
| Sjónvarpsauglýsingar LHS | ||
|---|---|---|
![]() |
![]() |
![]() |
SAMAN-hópurinn hefur verið mjög virkur í þessu starfi og nýlega var á þeirra vegum haldinn kynningarfundur á áherslum í starfi hópsins í sumar. Aðaláherslurnar í ár eru: Annars vegar að útvega ekki ungmennum yngri en 20 ára áfengi og hins vegar að foreldrar leyfi ekki eftirlitslaus partý og útvegi ungmennum þannig ekki aðstöðu til drykkju.
Jafnframt hafa að undanförnu verið að birtast á sjónvarpsstöðvunum auglýsingar hópsins, sem vakið hafa athygli fyrir að setja þessi skilaboð í skemmtilegan búning en eru unglingarnir í hlutverki foreldranna - þ.e. að hafa áhyggjur af þeirra hegðan.






