Samræmdu prófunum að ljúka - fögnum saman
Lýðheilsustöð er í samstarfi við t.a.m. SAMAN-hópinn við að minna okkur öll á að passa börnin okkar á þessum tímamótum, birtir auglýsingar með skilaboðum til fullorðinna um að kaupa ekki áfengi fyrir þá sem ekki hafa aldur né þroska til að neyta þess og birtir greinar sem minna á hvað þarf að hafa í huga á þessum tímamótum.
Grein eftir Önnu Elísabetu Ólafsdóttur: Flottir 10. bekkingar
Grein eftir Hildi Björgu Hafstein: Próflokum fagnað - saman
Viðvörunin vekur athygli
Til viðbótar Því sem hér að ofan segir er því við að bæta að í fréttatíma RÚV var í gærkvöldi fjallað um auglýsinguna hér á síðunni, ástæðuna fyrir birtingu hennar tekið viðtal við Hildi B. Hafstein og nokkra unglinga í Hagaskóla sem voru að ljúka samræmdu prófunum.
