Niðurstöður nýrrar rannsóknar á Heilsu og lífskjörum skólanema
Um er að ræða íslenskan hluta alþjóðlegrar rannsóknar sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og nefnist ,,Health and Behaviour in School-aged Children". Hér er um að ræða eitt viðamesta verkefni samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks og tóku um 40 lönd þátt í þeirri fyrirlögn sem fram fór nú í vetur.
Spurt var um lífstíl ungmennanna; næringu, matmálstíma, hreyfingu, tómstundir, líðan, félagsleg tengsl og umhverfi nemenda. Jafnframt var spurt um ýmsa áhættuhegðun, svo sem neyslu löglegra og ólöglegra vímuefna og áhættu í kynlífi.
Á fundinum munu Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri og Stefán Hrafn Jónsson verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð kynna fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar. Þá munu Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra, Anna Elísabet Ólafsdóttir forstjóri Lýðheilsustöðvar og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri ávarpa fundinn.
Allar nánari upplýsingar um tilhögun fundarins veitir Andrea Hjálmsdóttir í síma 821 1370
