Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Samstarf í þágu heilbrigðis barna á Íslandi

Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

6.4.2006

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er 7. apríl ár hvert. Yfirskriftin í ár er ,,samstarf í þágu heilbrigðis". Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins nýttu þetta tilefni til að undirrita formlegan samstarfssamning á milli stofnananna tveggja til ársins 2010.

Samstarfssamningur_LHS_og_Heilsug.1Auk þess að styrkja tengsl stofnananna er markmið með samstarfinu að vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum til stuðnings heilsu barna á Íslandi. Miðstöð heilusverndar barna annast framkvæmd samningsins f.h. Heilsugæslunnar.

Þegar eru hafin nokkur samstarfsverkefni þó ekki hafi verið undirritaður formlegur samningur þar um fyrr en nú. Má þar nefna gerð fræðsluefnis fyrir foreldra um næringu ungbarna, fræðsluefnis fyrir starfsfólk heilsugæslu og um tannvernd ungbarna. Ennfremur er samstarf um gerð fræðslu- og forvarnarefnis fyrir grunnskólabörn og foreldra þeirra, sem skólahjúkrunarfræðingar munu nýta í starfi sínu, og um útgáfu á rannsóknaverkefnum læknanema um lýðheilsu barna á Íslandi.

Samningurinn var undirritaður af Önnu Elísabetu Ólafsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, Guðmundi Einarssyni forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Geir Gunnlaugssyni forstöðumanni Miðstövar heilsuverndar barna.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica