Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Varað við ljósabekkjanotkun fermingarbarna

15.3.2006

Þessa dagana er verið að senda foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna póstkort þar sem bent er á hætturnar sem fylgja því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin á kortinu eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu. Þetta er þriðja árið sem þessir aðilar standa saman að fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“.

Á póstkortinu er vakin athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Bent er á að tíðni húðkrabbameins hafi aukist mikið á síðustu árum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að hafa í huga tilmæli alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki. 2006fermingarveggspjald400

Í samvinnu við Biskupsstofu hefur verið leitað til presta landsins um að leggja málefninu lið og dreift hefur verið veggspjöldum sem hengd verða upp þar sem fermingarfræðsla fer fram.

PDF-útgáfa af veggpspjaldi

Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu tvö ár hefur dregið verulega úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni nú er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni.

Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali 45 manns á ári með sortuæxli í húð, 45 með önnur húðæxli og um 170 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Krabbameinsfélags Reykjavíkur: www.krabb.is

Einnig gefur Halla Grétarsdóttir fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélaginu nánari upplýsingar, sími 540 1900.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica